Súpan sem bjargar okkur í haustlægðinni

Góð súpa er allt sem þarf á haustdögum sem þessum.
Góð súpa er allt sem þarf á haustdögum sem þessum. mbl.is/Anders Schønnemann

Það fer ekk­ert á milli mála að við erum dott­in inn í árstíðar­skipti. Þá fær­um við okk­ur frá útigrill­inu og yfir í pott­ana í eld­hús­inu. Súp­ur eru það allra besta þegar haust­lægðin ligg­ur yfir land­inu – ein sem ylj­ar manni um kropp­inn á meðan við heyr­um í rign­ing­unni berja á glugg­ana. Þessi súpa er með núðlum og portobello-svepp­um en það má vel bæta kjúk­lingi sam­an við til að hún verði mat­ar­meiri.

Súpan sem bjargar okkur í haustlægðinni

Vista Prenta

Súp­an sem bjarg­ar okk­ur í haust­lægðinni (fyr­ir 2)

  • 1 msk. engi­fer, smátt saxað
  • 2 stór hvít­lauksrif, mar­in
  • 2 tsk. sítr­ónugras, smátt saxað
  • 1 msk. rautt karrí (eða eft­ir smekk)
  • ólífu­olía
  • 8-10 dl græn­metiskraft­ur eða vatn
  • 2 msk. fiskisósa
  • safi úr ½ lime
  • 2 tsk. syk­ur

Fyll­ing:

  • 3 portobello-svepp­ir í skíf­um
  • 100 g græn­ar baun­ir
  • ólífu­olía
  • salt
  • núðlur
  • ½ búnt vor­lauk­ur
  • hand­fylli fersk mynta

Aðferð:

  1. Steikið engi­fer, hvít­lauk, sítr­ónugras og rautt karrí upp úr smá­veg­is af olíu í potti, samt ekki þannig að hrá­efn­in taki lit. Setjið kraft­inn eða vatnið út í og látið suðuna koma upp. Smakkið til með fiskisósu, lime og sykri – látið malla í 5-10 mín­út­ur.
  2. Steikið svepp­ina upp úr olíu á heitri pönnu. Gufu­sjóðið baun­irn­ar í nokkr­ar mín­út­ur upp úr salt­vatni.
  3. Sjóðið núðlurn­ar og setjið í tvær stór­ar skál­ar ásamt svepp­um, baun­um, vor­lauk og myntu. Hellið heitri súp­unni yfir og berið strax fram.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert