Brúðkaupsgestir beðnir um að mæta með samloku og stól

Myndir þú þora biðja gesti um að mæta með stól …
Myndir þú þora biðja gesti um að mæta með stól og nesti í veisluna þína. mbl.is/Colourbox

Brúðhjón hafa hlotið mikið lof á sam­fé­lags­miðlin­um Reddit eft­ir að mynd af boðskort­inu þeirra flaug um net­heim­ana. En yfir 1.000 at­huga­semd­ir hafa verið skrifaðar til þessa varðandi boðskortið.

Á boðskort­inu er fólk beðið um að svara hvort það ætli að mæta, rétt eins og venj­an er. En hjóna­korn­in bættu einnig við í und­ir­skrift­inni að ef þú svaraðir ekki fyr­ir ákveðinn tíma, þá þyrft­irðu vin­sam­leg­ast að mæta með þinn eig­in stól og sam­loku.

Eins og áður sagt, þá urðu viðbrögðin með þeim skemmti­legri. Einn sagði að þetta væri skot­helt dæmi og mæta þá með þægi­legri stól en verða á staðnum og mat sem þú vel­ur þér al­veg sjálf­ur. Ann­ar skrifaði að svo lengi sem það væri op­inn bar á staðnum, þá væri lítið mál að mæta með sinn eig­in stól og sam­loku. Spurn­ingu var einnig varpað fram í umræðunni hvort þú slypp­ir þá við að koma með rán­dýra gjöf þegar þú vær­ir ekki að borða rán­dýra mat­inn sem væri á boðstól­um.

Boðskortið sem um ræðir og vakið hefur heilmikla athygli á …
Boðskortið sem um ræðir og vakið hef­ur heil­mikla at­hygli á sam­fé­lags­miðlum. mbl.is/​reddit/​u/​kor­eena­lynn
Virkir í athugasemdum!
Virk­ir í at­huga­semd­um! mbl.is/​reddit
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert