Hversu vel þrífur þú eldhúsið?

Ertu með allt á hreinu í eldhúsinu hvað þrifin varðar?
Ertu með allt á hreinu í eldhúsinu hvað þrifin varðar? mbl.is/Colourbox

Við þurf­um að halda eld­hús­inu hreinu, því ann­ars end­ar það sem ein stór bakt­eríu­bomba. En hvernig er best að halda því hreinu til að missa ekki tök­in út í ein­hverja vit­leysu? För­um aðeins yfir tékklist­ann til að halda rétt á spöðunum.

Í hverri viku:
Gólfið: Þú þarft að skúra gólfið einu sinni í viku og alls ekk­ert endi­lega með heitu vatni. Það er nóg að vatnið sé volgt, það fer bæði bet­ur með gól­f­efnið og um­hverfið. Og passið að nota milt sápu­efni ef eitt­hvað er notað.

Ísskáp­ur­inn: Það er auðvelt að halda ís­skápn­um við ef þú tek­ur til í hon­um viku­lega. Þannig kem­ur þú í veg fyr­ir að mat­væli gleym­ist og hreins­ar út það sem er orðið gam­alt. Best er að þrífa ís­skáp­inn upp úr ed­iki sem blandað er í vatn og jafn­vel með 2-3 drop­um af uppþvotta­legi.

Rusla­fat­an: Staður­inn sem á það til að gleym­ast er rusla­fat­an. Mat­væli sem leka niður úr pok­an­um og beint í föt­una svo hún lykt­ar þrátt fyr­ir að pok­inn sé far­inn út í tunnu. Til að losna við slæma lykt eft­ir að hafa þrifið föt­una er ráð að bleyta upp í gömlu brauði með ed­iki og setja í hrein­an rusla­poka og láta standa í rusla­föt­unni yfir nótt.

Ofn­dyrn­ar: Glerið á ofn­in­um verður oft á tíðum hauga­skít­ugt ef við höld­um því ekki við. Þú get­ur þrifið brúna og brennda fitu með smá­veg­is af tann­kremi og hvít­lauks feiti.

Eld­hús­vask­ur­inn: Vask­ur­inn verður fyr­ir alla muni að fá al­menni­legt „bað“ einu sinni í viku. Þó að hann sé stans­laust und­ir vatns­b­un­unni yfir dag­inn þá er það ekki nóg. Hann verður að fá al­menni­legt skrúbb til að losa um bakt­erí­ur og annað sem ligg­ur á yf­ir­borðinu.

Í hverj­um mánuði:
Ofn­inn: Það er al­gjör­lega nauðsyn­legt að þrífa ofn­inn í það minnsta 1 sinni í mánuði, eða allt eft­ir því hversu oft þú not­ar hann. Þá erum við að tala um ofn­inn sjálf­an en ekki bara glerið eins og hér fyr­ir ofan. Bök­un­ar­plöt­urn­ar og grind­in þurfa sinn þvottanún­ing og þá er gott að not­ast við brúnsáp­una. Smyrja allt vel og vand­lega og pakka vel inn í poka eða plast­filmu. Skrúbba svo með svampi all­ar brennd­ar mat­ar­leif­ar á bak og burt.

Uppþvotta­vél­in: Það er hægt að kaupa hreinsi fyr­ir uppþvotta­vél­ina sem kost­ar lít­inn pen­ing út í búð. Munið að keyra ein­um góðum hreinsi í gegn ann­an slagið og takið rist­ina og filter­inn og skrúbbið vel í leiðinni.

mbl.is/​Colour­box
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert