Spennandi uppskrift af brúnkum með hellingur af súkkulaði og dass af chili, voru að koma úr ofninum. Hér er það ancho-chili sem bragðbætir uppskriftina, en það er dökkur og mildur chilipipar með ávaxtabragði og keim af lakkrís, kaffi og rúsínum.
Sætar súkkulaðibrúnkur með dass af chili
- 200 g smjör
- 200 g dökkt súkkulaði
- 4 egg
- 2 dl sykur
- 4 dl hveiti
- 2 tsk. lyftiduft
- 1 msk. Ancho chili pipar
- 3 ½ dl valhnetur
Glassúr:
- 25 g smjör
- 200 g dökkt súkkulaði
- 1/5 dl rjómi
- 1 msk Ancho chili pipar
Aðferð:
- Hitið ofninn á 175°C. Saxið súkkulaðið og valhneturnar gróflega.
- Bræðið smjörið og bætið súkkulaðinu út í. Blandið vel saman.
- Pískið egg og sykur þar til blandan verður létt í sér.
- Hellið súkkulaðinu yfir eggjablönduna. Bætið hveiti, lyftidufti, chili og hnetum og hrærið varlega.
- Hellið deiginu í vel smurt form (25x35 cm), en stráið smávegis af hveiti líka yfir formið.
- Bakið í 20 mínútur neðst í ofni. Leyfið kökunni svo að kólna.
Glassúr:
- Bræðið smjörið og setjið súkkulaði og rjóma út í – hrærið í og smakkið til með chili.
- Hellið glassúrnum yfir kökuna og leyfið því að kólna.
- Skerið í litla bita og berið fram.