Morgunmatur fyrir þá sem þora

Slengið þessum bollum á borðið strax!
Slengið þessum bollum á borðið strax! mbl.is/femina.dk_Columbus Leth

Við erum ekk­ert að grín­ast með þess­ar sam­lok­ur - morg­un- og há­deg­is­verður sam­an í einni loku. Það er spurn­ing hvort næsti þynnku­bani sé hér með fund­inn, því við erum að fá allt það besta sem lík­am­inn kall­ar á eft­ir gott næt­ur­brölt.

Morgunmatur fyrir þá sem þora

Vista Prenta

Morg­un­mat­ur fyr­ir þá sem þora

  • 20 g ger
  • 3 dl mjólk
  • 1 msk hun­ang
  • 1 egg
  • 1 tsk. salt
  • 50 g smjör
  • 600 g hveiti
  • 75 g dur­um hveiti

Annað:

  • 12 egg
  • 12 beikonskíf­ur
  • 12 chedd­arsneiðar
  • 12 msk. tóm­atsósa

Aðferð:

  1. Hrærið gerið út í mjólk­ina. Bætið við hun­angi, eggi, salti og smjöri.
  2. Hellið hveit­inu út í og hnoðið í 5-7 mín­út­ur. Látið hef­ast í 1½ tíma.
  3. Skiptið deig­inu upp í 12 bita og rúllið upp í boll­ur. Veltið boll­un­um upp úr dur­um­hveit­inu og látið hef­ast í aðrar 20 mín­út­ur.
  4. Hitið ofn­inn á 180°C. Steikið boll­urn­ar á báðum hliðum á þurri pönnu þar til þær taka lit. Leggið þær á bök­un­ar­papp­ír á bök­un­ar­plötu og setjið inn í ofn í 10 mín­út­ur. Látið kólna.
  5. Skerið boll­urn­ar til helm­inga og ristið í brauðrist eða ofni.
  6. Steikið bei­konið stökkt og spælið egg­in á pönnu. Leggið eina chedd­arost skífu ofan á ann­an bollu helm­ing­inn (12 stk) og leyfið ost­in­um að bráðna ör­lítið á heitri boll­unni. Smyrjið tóm­atsósu á hina 12 helm­ing­ana. Leggið bei­kon og egg á hverja bollu og berið strax fram.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert