Normann kynnir könnu í afmælisútgáfu

Kaffikönnurnar vinsælu frá Normann Copenhagen, nú fáanlegar í glamúrútgáfu.
Kaffikönnurnar vinsælu frá Normann Copenhagen, nú fáanlegar í glamúrútgáfu. mbl.is/Normann Copenhagen

Danska hönn­un­ar­fyr­ir­tækið Normann Copen­hagen kynnti á dög­un­um vin­sælu kaffi­könn­una sína í sér­legri af­mæl­isút­gáfu. Kann­an sem kall­ast GEO VACU­UM er nú fá­an­leg í glamúrút­gáfu.

Kann­an sem um ræðir er nú einnig mætt í stærri út­færslu, eða ein sem rúm­ar 1,5 lítra. Gyll­ing og silf­ur skreyt­ir topp­inn sem gef­ur kaffi­könn­unni al­veg nýtt út­lit á þess­ari tíma­lausu og stíl­hreinu könnu. En þess má einnig geta að kann­an hef­ur unnið til fjölda verðlauna fyr­ir hönn­un sína og gæði.

mbl.is/​Normann Copen­hagen
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert