Besta leiðin til að þrífa glerið í sturtunni

Við erum með trixin hvernig þrífa eigi sturtuglerið.
Við erum með trixin hvernig þrífa eigi sturtuglerið. mbl.is/Getty Images

Það jafn­ast ekk­ert á við góða sturtu eft­ir lang­an vinnu­dag. En þá vilj­um við líka að baðstaður­inn okk­ar sé hreinn og fínn, því ann­ars er litla ánægju úr þessu að hafa. En hvernig er best að þrífa sturtuglerið sem á það til að líta alltaf út fyr­ir að vera skít­ugt?

  • Fyrsta ráðið til að halda sturtugler­inu hreinu er að skola það með köldu vatni eft­ir hverja notk­un og skafa með gúmísköfu.
  • Blandaðu sam­an alkó­hóli og vatni í brúsa og spreyjaðu á glerið. Þurrkaðu yfir með dag­blöðum eða örtrefja­klút.
  • Edik hef­ur oft reynst vel á harða bletti á gler­inu, því vel reyn­andi að prófa.
  • Lyfti­duft er snilld­ar­efni til að hreinsa sápu­leif­ar af gler­inu án þess að not­ast við hörð búðarkeypt efni.
  • Og til að hjálpa gler­inu að hrinda frá sér vatni má ein­fald­lega setja Rain-X á glerið eft­ir að hafa þrifið. Það virk­ar á bíl­rúðuna og af hverju ekki á sturtuglerið líka?
Þrif skora oft ekki hátt á vinældalistanum hjá mörgum.
Þrif skora oft ekki hátt á vinældal­ist­an­um hjá mörg­um. mbl.is/​Shutter­stock
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert