Getur einhver vakið okkur af þessari matar-upplifunar-sælu sem var að eiga sér stað! Kjúklingur í ostabaði er eitthvað sem við sláum aldrei hendinni á móti - það er bara þannig.
Sinnepsfylltur kjúlli í ostabaði
- 125 g mozzarellakúla, rifin í minni bita
- 50 g cheddarostur
- 1 msk. heilkorna sinnep
- 4 kjúklingabringur
- 8 beikonskífur
Aðferð:
- Hitið ofninn á 180°C á blæstri.
- Blandið ostunum og sinnepinu saman.
- Skerið rifu á bringurnar og fyllið þær með sinnepsostafyllingunni. Vefjið tveimur beikonskífum utan um hverja bringu og leggið í eldfast mót.
- Eldið í 20-25 mínútur eða þar til bringurnar eru eldaðar í gegn.
- Berið fram með góðu salati eða hrísgrjónum.