Vissir þú þetta um brokkólí?

Brokkolí er algjör súperfæða!
Brokkolí er algjör súperfæða! mbl.is/bbcgoodfood.com

Brok­kolí eða spergilkál er al­gjör súper­fæða! Hér eru nokkr­ar staðreynd­ir um brok­kolí sem þú ef­laust ekki viss­ir, en þetta litla græna tré er ekki bara bragðgott, held­ur stút­fullt af góðum víta­mín­um og upp­lagt að nota í ídýf­ur.

  • Brok­kolí er í sömu fjöl­skyldu og blóm­kál.
  • Brok­kolí er fullt af A-, C- og E- víta­mín­um, járni og fólín­sýru.
  • Brok­kolí inni­held­ur efnið súlforaf­an sem hef­ur já­kvæð áhrif á niður­brot krabba­meinsvald­andi efna. Til að súlforaf­an virk­ist í lík­am­an­um þínum þegar þú borðar brok­kolí er þörf fyr­ir ensím sem einnig má finna í grænu stöngl­un­um.
  • Þegar þú sýður brok­kolí í 1 mín­útu eyðilegg­ur þú ensímið í græn­met­inu. Þess vegna er betra að gufu­sjóða brok­kolíið í staðinn í sirka 4 mín­út­ur. Þannig held­ur þú öll­um mik­il­vægu nær­ing­ar­efn­un­um inni.
  • Brok­kolí er mjög gott fyr­ir háan blóðþrýst­ing.
  • Það er erfitt fyr­ir lík­amann að melta hrátt brok­kolí. Bakt­erí­urn­ar í þörm­un­um brjóta niður kálið sem fær mag­ann til að þenj­ast út og við leys­um vind.
  • Stöng­ull­inn sjálf­ur er alls ekki ónýt­ur í mat­ar­gerð. Skerðu ysta lagið af stöngl­in­um og skerðu hann svo niður í mjóa strimla og settu með í gufu­soð næst þegar þú býður upp á brok­kolí í mat­inn.

Brok­kolí-ídýfa
Eig­ir þú brok­kolí í af­gang get­ur þú létti­lega búið til ídýfu. Blandaðu sam­an brok­kolí við kjúk­linga­baun­ir, þá 3 á móti 1 og maukaðu sam­an í mat­vinnslu­vél. Smakkaðu til með ólífu­olíu, cum­in, salti og pip­ar.

Brokkolí-ídýfa er glettilega góð.
Brok­kolí-ídýfa er gletti­lega góð. mbl.is/​thefull­help­ing.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert