Naglalakk sem hægt er að borða

Má bjóða þér tveggja rétta „máltíð“ með naglalakki?
Má bjóða þér tveggja rétta „máltíð“ með naglalakki? mbl.is/Supplied_Deliveroo

Mat­væla­fræðing­ar hafa gert hið ómögu­lega að veru­leika, eitt­hvað sem þig óraði ekki að hægt væri að gera – naglalakk sem má borða.

Það er ástr­alska mat­arþjón­ustu­fyr­ir­tækið Deli­veroo sem á hug­mynd­ina að naglalakk­inu en inn­blástur­inn kom frá Willy Wonka sjálf­um, úr kvik­mynd­inni „Kalli og súkkulaðiverk­smiðjan“, sem var með þriggja rétta máltíð í tyggjói.

Annað naglalakkið býður upp á tveggja rétta máltíð þar sem þú get­ur „gætt“ þér á reykt­um BBQ-rifj­um með lauk­hringj­um. Hitt smakk­ast eins og klass­ísk blá­berja­baka. Fram­leiðend­ur lakks­ins vilja þó góðfús­lega benda á að nagla­lökk­in eru ekki máltíð, held­ur ein­göngu til að sleikja sér til yndis­auka.

Annað lakkið mun vera fá­an­legt í tak­mörkuðu upp­lagi og ber nafnið „Pol­is­hed Meal“. Með því að festa kaup á slíku lakki ertu að styrkja her­ferðina Pol­is­hed Man, sem safn­ar fé fyr­ir börn sem eru í hættu eða hafa hafa lent í of­beldi af ein­hverju tagi. Pol­is­hed Man hvet­ur menn og kon­ur til að lakka á sér negl­urn­ar og vekja þannig at­hygli á því að eitt barn deyr 5. hverja mín­útu sök­um of­beld­is í heim­in­um. En þess má geta að stór­stjörn­ur á borð við Chris Hemsworth, Zac Efron og Kelly Slater hafa öll tekið þátt í her­ferðinni.  

Eitt naglalakkið er framleitt til góðgerðarmála og því ekkert til …
Eitt naglalakkið er fram­leitt til góðgerðar­mála og því ekk­ert til fyr­ir­stöðu að festa kaup á einu og smakka. mbl.is/​Supp­lied_Deli­veroo
mbl.is/​Supp­lied_Deli­veroo
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert