10 ráð til að hreyfa sig á annasömum degi

Það er hægt að fá fullt af hreyfingu heima fyrir …
Það er hægt að fá fullt af hreyfingu heima fyrir og í vinnunni. mbl.is/©Victor Jones

Mörg okk­ar sitja meira yfir dag­inn en áður fyrr. En ekki ör­vænta og skamma sjálfa þig ef þú kemst ekki í rækt­ina því við get­um hreyft okk­ur og talið mörg skref eft­ir dag­inn á afar ein­fald­an hátt.

Labbaðu eins mikið og þú get­ur – leggðu bíln­um eins langt frá inn­gang­in­um og taktu alltaf lengri leiðina að sal­ern­inu í vinn­unni eða mötu­neyt­inu.

Stilltu sím­ann á hring­ingu á hálf­tíma fresti – stattu upp og teygðu úr þér, gakktu jafn­vel einn stutt­an hring í kring­um vinnu­stöðina þína áður en þú sest niður aft­ur. Skolaðu eplið sem þú tókst með þér eða gæddu þér á ban­ana.

Stattu upp og gakktu um á meðan þú tal­ar í sím­ann.  

Veldu prent­ara á skrif­stof­unni, rusla­fötu eða kaffi­vél sem er hvað lengst frá skrif­borðinu þínu.

Ekki senda tölvu­póst til vinnu­fé­lag­anna – stattu frek­ar upp og talaðu um það sem þú ætlaðir ann­ars að skrifa.

Taktu fund á meðan þú geng­ur um, sér­stak­lega ef um tveggja manna fund er að ræða.

Taktu tröpp­urn­ar í staðinn fyr­ir lyft­una eða rúllu­stig­ann. Púls­inn mun fara upp á við og þú not­ar stóru vöðvana þína í lær­um og rassi.

Stattu í strætó í stað þess að setj­ast niður. Sér­stak­lega ef þú sit­ur all­an dag­inn.

Stattu upp frá sóf­an­um í hvert skipti sem það koma aug­lýs­ing­ar eða á milli sjón­varpsþátta. Brjóttu sam­an föt á meðan, tæmdu uppþvotta­vél­ina eða smyrðu nesti fyr­ir morg­undag­inn.

Gerðu létt­ar æf­ing­ar heima fyr­ir – sveiflaðu hönd­un­um þegar þú geng­ur á milli rýma, eða gerðu arm­beygj­ur á eld­hús­borðinu á meðan vatnið í pott­in­um er að ná suðu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert