Er vatnsflaskan að gera þig veikan?

Þessi kona notar vatnsflösku í ræktinni en ætti frekar að …
Þessi kona notar vatnsflösku í ræktinni en ætti frekar að notast við brúsa sem hægt er að þrífa. mbl.is/cathe.com_shutterstock

Fyll­ir þú reglu­lega á vatnið og not­ar sömu flösk­una aft­ur og aft­ur? Það er gott fyr­ir um­hverfið en hvaða áhrif skildi það hafa á þig?

Sam­kvæmt rann­sókn­um sem gerðar voru af Trea­dmill­reviews er svarið ein­falt. Vatns­flösk­ur sem þú not­ar dag­lega und­ir vatn og án þess að þvo þær inn á milli eru með óheyri­lega mikið magn af bakt­erí­um. Í raun er magnið það hátt að þú færð fleiri bakt­erí­ur af flösk­unni en ef þú mynd­ir sleikja hunda­leik­fang!

Rann­sókn­irn­ar sýndu einnig fram á að lang­flestu bakt­erí­urn­ar voru á flösk­um með skrúfu­loki og þær flösk­ur sem voru með röri voru hrein­leg­ast­ar.

Það er því ráð að hugsa sig tvisvar um ef þú end­ur­vinn­ur vatns­flösk­ur og nota þá frek­ar marg­nota vatns­brúsa. Best er að þvo brús­ann eft­ir hvern dag og ekki verra ef brús­inn má fara í uppþvotta­vél í það minnst einu sinni í viku.

Það liggja margar bakteríur á vatnsflöskunum sem sum okkar notum …
Það liggja marg­ar bakt­erí­ur á vatns­flösk­un­um sem sum okk­ar not­um dag­lega. mbl.is/​Pure Water Purifiers / Flickr
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert