Extra gott lasagne

Gómsætt og girnilegt lasagne af allra bestu gerð.
Gómsætt og girnilegt lasagne af allra bestu gerð. Sæson_Henrik Freek

Við þekkj­um öll lasagne, en þetta hér er með því betra sem þú munt smakka og stút­fullt af góðu græn­meti. Hér er mælst með að setja græn­metið í mat­vinnslu­vél og hakka það fínt niður – en það má líka saxa það smátt.

Extra gott lasagne

Vista Prenta

Extra gott lasagne (fyr­ir 6)

  • 1 msk ólífu­olía
  • 400 g nauta­hakk
  • 100 g svepp­ir
  • 2 lauk­ar
  • 3 gul­ræt­ur
  • 1-2 stór hvít­lauksrif
  • 50 g bei­kon, skorið í litla bita
  • 2 dl kraft­ur
  • 1 dós hakkaðir tóm­at­ar
  • 2 msk. tóm­at­p­ur­ré
  • Salt og pip­ar
  • 2 tsk. or­egano
  • 1 tsk. timí­an
  • 12 lasagne­plöt­ur
  • 150 g rif­inn ost­ur

Sósa:

  • 25 g smjör
  • 2,5 msk. hveiti
  • ½ l sjóðandi létt­mjólk
  • Salt og pip­ar
  • Nýrifið múskat

Aðferð:

  1. Skerið svepp­ina smátt ásamt lauk, gul­rót­um og hvít­lauk. Steikið upp úr olíu á pönnu. Bætið bei­kon­bit­um út á pönn­una og því næst nauta­hakk­inu og steikið áfram.
  2. Kraft­ur­inn kem­ur út á pönn­una og síðan hökkuðu tóm­at­arn­ar, pur­ré og önn­ur krydd. Látið malla í 20 mín­út­ur og smakkið til með salti og pip­ar.
  3. Sósa: Bræðið smjörið í potti og hrærið hveit­inu sam­an við. Hrærið mjólk­inni út í, smátt og smátt. Látið suðuna koma upp og hrærið í á meðan í 5 mín­út­ur. Smakkið til með salti og pip­ar og múskati.
  4. Smyrið eld­fast mót og leggið lasagne­plöt­ur í botn­inn. Setjið kjötsósu yfir og því næst sósu. Dreyfið ör­lítið af ost­in­um yfir og end­ur­takið 2 sinn­um til viðbót­ar.
  5. Setjið lasagne í ofn­inn á 200°C í 30-35 mín­út­ur.
  6. Berið fram með góðu brauði og sal­ati.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert