Leynitrixið til að halda þvottinum hvítum

Verður hvíti þvotturinn þinn stundur grár?
Verður hvíti þvotturinn þinn stundur grár? mbl.is/parenting.firstcry.com

Ein út­breidd­asta mýta um hvernig eigi að þvo hvít­an þvott er ekki öll þar sem hún er séð. Talað er um að þvo alltaf hvít rúm­lök með hvít­um sæng­ur­ver­um til að þau gráni ekki – en það er ekki rétt.

Í raun verða rúm­lök­in grá og leiðin­leg ef þú treður of mikl­um þvotti í vél­ina. Þannig ná þau ekki að þríf­ast al­menni­lega þar sem grám­inn er í raun þunnt lag af óhrein­ind­um.

Ef hvítu rúm­lök­in þín eru að koma of grá úr vél­inni þar sem þú hef­ur troðið of miklu sam­an við skaltu ein­fald­lega gefa þeim ann­an snún­ing með hæfi­legu magni af þvotta­efni. Og þvoðu þau á þeim hita sem mælt er með á þvottamiðanum.

mbl.is/​Chor­eograph­Getty Ima­ges
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert