Þessi uppskrift er fyrir alla vegan-ista þarna úti - bragðgóðar vöfflur sem innihalda hnetusmjör. Og fyrir þá sem vilja meira af hnetusmjöri en uppskriftin geymir, geta þeir skreytt sína vöfflu með smjörinu góða. Þú getur auðveldlega sett þessar í frysti og tekið út þegar maginn kallar á eitthvað gott.
Vegan vöfflur með hnetusmjöri
- 1¾ bolli fínmalað hveiti
- 1 tsk. lyftiduft
- ¼ tsk. salt
- ⅓ bolli hnetusmjör
- 1 msk. ground flax meal
- 2 msk. maple síróp eða agave
- 1 ⅔ bolli soya mjólk (plant milk)
- 1 tsk. eplasíder edik
Aðferð:
- Hitið vöfflujárnið og notið bökunarsprey til að smyrja það.
- Þeytið saman hveiti, lyftidufti og salti í stóra skál.
- Bætið hnetusmjöri saman við ásamt ground flax, sírópi, mjólkinni og ediki. Blandið saman þar til mjúkt.
- Bakið vöfflur eins og venja er á og berið fram með því sem hugurinn girnist.
Girnilegar vöfflur með berjum og nóg af hnetusmjöri.
mbl.is/Thefullhelping.com