Þetta er svona forréttur sem þú gætir borðað endalaust af - svo ferskur og góður. Blómkál, rækjur og ferskt salat er allt sem til þarf ásamt stórkostlegri dressingu sem bindur þetta allt saman.
Ferskasti forréttur allra tíma (fyrir 4)
- 200 g stórar rækjur
- Blómkálshaus
- Hjartasalat eða annað gott salat
- Svört sesamfræ
- Rúgbrauð
Dressing:
- 1 dl gott majónes
- 2 dl sýrður rjómi 18%
- 4 msk. dill, saxað
- 2 msk. sítrónusafi
- ½ tsk. sykur
- 1 tsk. dijonsinnep
- Salt og pipar
Aðferð:
- Skerið blómkálið í litla bita og hreinsið rækjurnar.
- Sjóðið blómkálið í léttsöltu vatni í 2-3 mínútur.
- Hrærið hráefnunum saman í dressinguna og smakkið til með salti og pipar.
- Setjið salat, blómkál og rækjur í glös (jafnvel fín á fæti).
- Dreifið dressingu yfir og berið restina fram með forréttinum.
- Skreytið með dilli og svörtum sesamræjum. Ristið rúgbrauð og skerið í strimla.