Ítalir eru ekkert að flækja hlutina þegar kemur að matargerð. Þetta snýst allt um að raða réttu hráefnunum saman og njóta. Rétt eins og í þessari uppskrift þar sem pasta, parmesan og beikon mætast.
Ómótstæðilegt kjúklingapasta (fyrir 4)
- 400 g spaghettí eða pasta
- 500 g kjúklingabringur
- 1 msk. timían, söxuð
- 1-2 msk. olía
- 100 g beikon, steikt
- 100 g brauðteningar
- 50 g parmesan
Parmesandressing:
- 50 g parmesan, fínt rifinn
- 1 stórt hvítlauksrif
- 1 tsk dijon sinnep
- 1-2 ansjósur
- 2 dl hrein jógúrt
- Salt og pipar
- Extra parmesan til skrauts
Aðferð:
- Blandið öllum hráefnum saman í dressinguna og smakkið til með salti og pipar.
- Sjóðið pastað samkvæmt leiðbeiningum.
- Skerið kjúklinginn í langar ræmur og stráið timían, salti og pipar yfir.
- Steikið kjúklinginn á heitri pönnu upp úr olíu í 2-3 mínútur.
- Steikið beikonið á pönnu. Setjið pastað í stóra skál og blandið því saman við kjúklinginn, beikon, brauðteninga og dressinguna.
- Setjið í 4 skálar, dreifið nýrifnum parmesan yfir og berið fram.