Baka með stökkum botni, beikoni og karamellulauk

Stórkostlega góð baka sem mettar marga munna.
Stórkostlega góð baka sem mettar marga munna. mbl.is/Winnie Methmann

Hér er ekk­ert verið að baka vand­ræði – bara ein­tóma sælu sem lýs­ir sér í stökkri böku með fyll­ingu. Bei­kon og kara­mellu­lauk­ur setja sinn svip á rétt­inn sem hent­ar í kvöld­mat hvaða viku­kvöld sem er.

Baka með stökkum botni, beikoni og karamellulauk

Vista Prenta

Baka með stökk­um botni, bei­koni og kara­mellu­lauk

Botn:

  • 200 g hveiti
  • 1 tsk. salt
  • 100 g kalt smjör
  • 4 msk. ískalt vatn
  • Tertu­form, sirka 25 cm

Fyll­ing:

  • 100 g bei­kon í bit­um
  • 500 g blandaðir svepp­ir
  • 2 rauðlauk­ar
  • 1 msk. ólífu­olía
  • 2 msk. bal­sa­mike­dik

Eggjamassi:

  • 3 egg
  • 3 msk. sýrður rjómi, 18%
  • 1 msk. ferskt timí­an, saxað
  • Salt og pip­ar

Aðferð:

Botn:

  1. Blandið hveiti og salti sam­an í skál. Skerið smjörið í ten­inga og smuldrið því út í hveitið. Bætið ís­köldu vatni út í og blandið sam­an með gaffli (bætið við vatni ef það er ekki nóg). Hnoðið deig­inu sam­an á borðplötu og pakkið því síðan inn í plast­filmu – setjið í kæli í 30 mín­út­ur.
  2. Fletjið tertu­deig­inu út með köku­kefli á hveit­i­stráðu borði og leggið í tertu­formið, munið að fara upp með hliðunum. Stingið göt í botn­inn með gaffli og bakið í ofni í 10 mín­út­ur.

Fyll­ing:

  1. Steikið bei­konið á þurri pönnu og setjið á eld­húsrúllu til að leyfa fit­unni að leka af.
  2. Skerið svepp­ina í skíf­ur og steikið þá upp úr bei­kon­fit­unni á pönnu þar til þeir byrja að taka lit.
  3. Skerið rauðlauk­inn í þunn­ar ræm­ur og steikið á pönn­unni, bætið jafn­vel smá olíu út á. Setjið bal­sa­mik edik út á pönn­una rétt áður en rauðlauk­ur­inn byrj­ar að brún­ast og veltið þar til vökvinn hef­ur gufað upp.

Eggjamassi:

  1. Pískið egg, sýrðan rjóma og smátt saxað timí­an sam­an, saltið og piprið. Dreifið blönd­unni yfir for­bakaða tertu­botn­inn.
  2. Toppið með svepp­um, bei­kon­bit­um og kara­mellu­lauk. Bakið í 30 mín­út­ur þar til eggjamass­inn hef­ur tekið sig „fast­an“ og botn­inn orðinn stökk­ur og gyllt­ur.
  3. Skreytið með timí­an og berið fram.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert