Karmellukökur sem eru æðislegar

Við getum næstum óskað gleðilegra jóla með þessari sætu köku.
Við getum næstum óskað gleðilegra jóla með þessari sætu köku. mbl.is/Kaere-hjem.dk_Stine Christiansen

Get­um við sagt að jól­in séu freist­andi? Það eru jú freist­ing­ar á hverju strái hvað smá­kök­ur, kon­fekt og góðan mat varðar. Þessi sæta jóla­synd inni­held­ur hnet­ur úr ýms­um átt­um og er hreint út sagt unaðsleg.

Karmellukökur sem eru æðislegar

Vista Prenta

Sæta jóla­synd­in

  • 150 g smjör
  • 225 g hveiti
  • 75 g flór­syk­ur
  • 1 eggj­ar­auða
  • 1 msk kalt vatn
  • Smjör til að smyrja formið                           

Kara­mellu-hnetu­fyll­ing:

  • 100 g hesli­hnet­ur
  • 100 g val­hnet­ur
  • 100 g maka­da­míu­hnet­ur
  • 50 g ósaltaðar pist­asíu­hnet­ur
  • 3 dl syk­ur
  • 50 g smjör
  • 3 dl rjómi
  • Sjáv­ar­salt
  • 40 g sultaður app­el­sínu­börk­ur (má sleppa)

Aðferð:

Botn:

  1. Smuldrið smjörið í hveitið og bætið flór­sykri og eggj­ar­auðu út í. Hnoðið sam­an.
  2. Setjið filmu yfir skál­ina og setjið inn í ís­skáp í sirka 1 tíma.
  3. Smyrjið formið (sirka 26x26 cm) með smjöri og hitið ofn­inn á 180°.
  4. Rúllið deig­inu út þannig að það sé sirka ½ cm á þykkt­ina og leggið í formið. Bakið í 15-18 mín­út­ur.

Kara­mellu-hnetu­fyll­ing:

  1. Leggið hesli­hnet­urn­ar á bök­un­ar­papp­ír á bök­un­ar­plötu og ristið í ofni við 180° í 10 mín­út­ur, þar til þú finn­ur ilm­inn leika um húsið. Reynið að „nudda“ eins mikið af hnetu­hýðinu af með t.d. viska­stykki.
  2. Saxið val­hnet­urn­ar gróf­lega og dreifið þeim ásamt rest­inni af hinum hnet­un­um á bök­un­ar­plötu og ristið í ofni í 5-6 mín­út­ur þar til gyllt­ar og byrja að ilma. Passið samt að rista þær ekki of mikið og látið al­veg kólna.
  3. Bræðið syk­ur­inn í potti þar til kara­mellu­kennd­ur og takið þá af hell­unni. Bætið 1 skeið af smjöri út í í einu á meðan þú hrær­ir í á meðan. Bætið því næst rjóm­an­um út í og setjið aft­ur á hell­una. Leyfið sós­unni að koma upp og setjið jafn­vel smá sjáv­ar­salt út í á meðan þú hrær­ir í. Setjið í kæli í 1 tíma.
  4. Dreifið hnet­un­um og app­el­sínu­berk­in­um (ef vill) á botn­inn og hellið kaldri kara­mellusós­unni yfir.
  5. Setjið kök­una í kæli þar til kara­mell­an er orðin stíf.
  6. Skerið í bita og berið fram.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert