Dekraðu við fjölskylduna með þessum dásamlegu súkkulaðiskonsum sem eru með þeim betri í bransanum. Það mun enginn kvarta yfir sunnudagskaffinu þegar þessar lenda á borðinu.
Lúxus sunnudagsbakstur
- 500 g hveiti
- 3 tsk lyftiduft
- 50 g sykur
- ½ tsk fínt salt
- 125 g mjúkt smjör
- 2 egg
- 1 dl rjómi
- 1 dl mjólk
- 75 g hvítt súkkulaði
- 75 g dökkt súkkulaði
- 1 egg til penslunar
Aðferð:
- Setjið hveitið í skál ásamt lyftidufti, sykri og salti. Smuldrið smjörinu í hveitið og bætið eggjunum saman við.
- Hellið rjóma og mjólk út í og blandið vel saman. Ef deigið er of þurrt má bæta við smáveigis af mjólk.
- Saxið súkkulaðið og setjið saman við og hnoðið áfram þar til slétt. Látið deigið hvíla í 30 mínútur.
- Hitið ofninn á 200°C. Rúllið deiginu út, sirka 2 cm þykkt.
- Notið hringlaga form og skerið út sirka 5 cm hringi.
- Leggið á bökunarpappír á bökunarplötu og penslið með pískuðu eggi.
- Bakið í 12-15 mínútur þar til gylltar á lit og látið kólna á rist.