Fiskrétturinn sem bjargar deginum

Marineraður lax með grænkáli og avókadó.
Marineraður lax með grænkáli og avókadó. mbl.is/Femina.dk_Columbus Leth

Það er nauðsyn­legt að hafa aðgang að upp­skrift sem þess­ari þegar kropp­ur­inn kall­ar á góðan og nær­ing­ar­rík­an mat. Hér er fisk­ur­inn mar­in­eraður og bor­inn fram með hrís­grjón­um og græn­káli. Gott er að láta lax­inn liggja í mar­in­er­ingu í hálf­tíma ef þú hef­ur tíma.

Fiskrétturinn sem bjargar deginum

Vista Prenta

Fisk­rétt­ur­inn sem bjarg­ar deg­in­um (fyr­ir 4)

  • 1 msk. sojasósa
  • 1 msk. hun­ang
  • ½ msk. ses­a­mol­ía
  • ½ msk. límónusafi
  • 4 laxa­bit­ar
  • 2 msk. ólífu­olía

Græn­kál:

  • 100 g ferskt græn­kál
  • 1 msk. ses­a­mol­ía
  • Salt

Annað:

  • 4 dl hrís­grjón
  • 2 avóka­dó
  • 1 msk. svört ses­am­fræ
  • 1 límóna

Aðferð:

  1. Sjóðið hrís­grjón­in sam­kvæmt leiðbein­ing­um á pakka.
  2. Hrærið soja, hun­angi, ses­a­mol­íu og límónusafa sam­an og penslið lax­inn með mar­in­er­ing­unni. Steikið lax­inn upp úr olíu á pönnu í 4-5 mín­út­ur á hvorri hlið þar til hann er steikt­ur í gegn.

Græn­kál:

  1. Skerið græn­káls­blöðin í grófa bita og snögg­steikið upp úr ses­a­mol­íu á pönnu þar til þeir eru stökk­ir og hafa tekið lit. Kryddið með salti.
  1. Skerið avóka­dó til helm­inga og fjar­lægið stein­inn – skerið avóka­dó í bita.
  2. Setjið hrís­grjón­in í skál og toppið með steiktu græn­káli, lax og avóka­dóbit­um.
  3. Dreifið ses­am­fræj­um yfir og berið strax fram með límónu­bát­um.
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert