Bronslitaðar og brenndar möndlur

Ristaðar möndlur eru fastur liður á aðventunni.
Ristaðar möndlur eru fastur liður á aðventunni. mbl.is/Bobedre.dk_ © Pernille Greve

Ilm­ur­inn af brennd­um möndl­um kall­ar á jól­in og hér eru þær í glamúr út­gáfu. Brennd­ar möndl­ur eru frá­bær vina­gjöf í glerkrukku með slaufu og einni greni­grein um sig miðja.

Bronslitaðar og brenndar möndlur

Vista Prenta

Bronslitaðar og brennd­ar möndl­ur

  • 200 g möndl­ur
  • 100 g syk­ur
  • 1 dl vatn
  • Bronslitað mat­ar­duft/​glimmer

Aðferð:

  1. Setjið möndl­ur, syk­ur og vatn á pönnu á meðal­hita.
  2. Þegar vatnið hef­ur gufað upp og syk­ur­inn leysts upp, lækkið þá aðeins niður í hit­an­um á meðan þú hrær­ir jafnt og þétt í möndl­un­um. Þær eru til­bún­ar þegar þær eru orðnar glans­andi og syk­ur­inn eins og kara­mella.
  3. Setjið í poka ásamt brons­duft­inu og hristið sam­an.
  4. Setjið í glerkrukku eða annað sem held­ur loft­inu úti.
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert