Pastaréttur að hætti Jamie Oliver

Pastaréttur nautnaseggsins er kominn á borðið.
Pastaréttur nautnaseggsins er kominn á borðið. mbl.is/JamieOliver.com

Jamie Oli­ver er eng­inn nýgræðing­ur í eld­hús­inu og hér með pasta­rétt sem set­ur bragðlauk­ana á hliðina. Hér mæl­ir Jamie með að setja smá ferskt chili út í sós­una ef þú vilt hafa hana aðeins sterka.

Pastaréttur að hætti Jamie Oliver

Vista Prenta

Pasta­rétt­ur að hætti Jamie Oli­ver

  • 1 butt­ernut squash, hýðið tekið af, kjarn­inn fjar­lægður og skor­inn niður í bita.
  • 2 hvít­lauksrif, mar­in
  • 250 g fersk basilika, söxuð smátt
  • 400 g litl­ir tóm­at­ar skorn­ir í sneiðar
  • Sjáv­ar­salt
  • 500 g penne pasta
  • Svart­ur pip­ar
  • 3 msk ricotta ost­ur
  • 750 g græn­metiskraft­ur
  • 150 g mozzar­ella kúla
  • Hand­fylli nýrif­inn fersk­ur par­mes­an ost­ur
  • 2 sage grein­ar

Aðferð:

  1. Hitið ofn­inn á 200°C. Raðið butt­ernut squashinu á bök­un­ar­plötu og dreypið ólífu­olíu yfir. Hitið í ofni í 15 mín­út­ur þar til mjúkt.
  2. Hitið ólífu­olíu á pönnu og steikið hvít­lauk og basilik­una í nokkr­ar mín­út­ur. Bætið við tómöt­um og því næst ristaða butt­ernut squash-inum og látið suðuna koma upp, lækkið þá und­ir hit­an­um og látið malla í 10 mín­út­ur.
  3. Sjóðið pastað í potti en ekki all­an suðutím­ann sem mælst er með. Hellið vatn­inu af og setjið pastað út á pönn­una.
  4. Setjið basilik­una út á pönn­una og saltið og piprið. Hrærið ricotta ost­in­um sam­an við og kraft­in­um og leyfið suðunni að koma upp.
  5. Smyrjið eld­fast mót og hellið blönd­unni yfir í mótið. Rífið mozzar­ella kúl­una yfir og toppið með par­mes­an. Nuddið sage lauf­in upp úr ólífu­olíu og setjjið á topp­inn.
  6. Bakið í 15 mín­út­ur þar til gyllt á lit og berið fram með góðu sal­ati.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert