Sjáðu jólaborðin hjá Royal Copenhagen

Gun-Britt töfraði fram þetta borð. Hún hefur verið hárgreiðslukona frá …
Gun-Britt töfraði fram þetta borð. Hún hefur verið hárgreiðslukona frá því hún var 13 ára og er mikill fagurkeri. Innblásturinn kemur frá Tisvilde Strand, þar sem hún fer reglulega og dýfir sér í sjóinn. Borðið er skreytt með steinum og skeljum af ströndinni ásamt matarstellinu HAV og Element. Hér er vel tekið á móti gestum með ostrum og dry martini við hönd. mbl.is/© Jeppe Bjørn for Royal Copenhagen

Í 56. skiptið fær Royal Copen­hagen til sín sér­valið lið af fólki úr ýms­um átt­um til að hanna fyr­ir sig hátíðar­borð fyr­ir jól­in – og þetta er út­kom­an.

Þemað í ár var „hafið“ – en það hef­ur bein­teng­ingu í nýja mat­ar­stellið sem fyr­ir­tækið sendi frá sér í byrj­un árs og kall­ast HAV. En í ár voru t.d. gullsmiður, hár­greiðslu­kona og brimbrettamaður sem sáu um að dekka borðin, þá öll eft­ir sínu höfði.

Það má skoða borðin í versl­un Royal Copen­hagen á Ama­gertorv 6, allt fram til 31. des­em­ber.

mbl.is/© ​Jeppe Bjørn for Royal Copen­hagen
mbl.is/© ​Jeppe Bjørn for Royal Copen­hagen
Emilie Helmstedt hannaði þetta svakalega jólaborð þar sem hún sækir …
Em­ilie Helm­stedt hannaði þetta svaka­lega jóla­borð þar sem hún sæk­ir inn­blást­ur sinn í kór­al­inn. Skreyt­ing­in dá­leiðir mann nán­ast frá toppi til táar. mbl.is/© ​Jeppe Bjørn for Royal Copen­hagen
mbl.is/© ​Jeppe Bjørn for Royal Copen­hagen
Veitingahúsaeigendurnir Louise og Kenneth Toft-Hansen settu saman matarborð sem rúmar …
Veit­inga­húsa­eig­end­urn­ir Louise og Kenn­eth Toft-Han­sen settu sam­an mat­ar­borð sem rúm­ar 22 manns í sæti. Hör­dúk­ur er á borðinu og stellið er frá Royal Copen­hagen sem fell­ur vel inn í mos­ann og grenið sem skreyt­ir borðið. mbl.is/© ​Jeppe Bjørn for Royal Copen­hagen
mbl.is/© ​Jeppe Bjørn for Royal Copen­hagen
Það er atvinnumaður á brimbretti sem sýnir heldur betur öðruvísi …
Það er at­vinnumaður á brimbretti sem sýn­ir held­ur bet­ur öðru­vísi stemn­ingu á jóla­borðinu í ár. Í skott­inu á bíln­um má finna allt sem til þarf til að halda góða veislu og jólaserí­an set­ur punkt­inn yfir i-ið. mbl.is/© ​Jeppe Bjørn for Royal Copen­hagen
mbl.is/© ​Jeppe Bjørn for Royal Copen­hagen
Gullsmiðurinn Rebecca Elbek rekur sitt eigið verkstæði í Kaupmannahöfn. Hér …
Gullsmiður­inn Re­becca El­bek rek­ur sitt eigið verk­stæði í Kaup­manna­höfn. Hér not­ast hún við blá­an og gyllt­an lit á borðinu sínu sem kem­ur stór­kost­lega út og í takt við þemað í ár. Takið eft­ir sand­in­um sem ligg­ur ofan á borðplöt­unni. mbl.is/© ​Jeppe Bjørn for Royal Copen­hagen
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert