Aðventubrauð með rósmarín

Fullkomið brauð á aðventunni - sem verður einstaklega jólalegt þegar …
Fullkomið brauð á aðventunni - sem verður einstaklega jólalegt þegar rósmarín greinarnar skreyta það. mbl.is/Kære-hjem.dk_Columbus Leth

Það eru ekki bara smá­kök­ur sem við bök­um um jól­in, því nýbakað brauð á aðvent­unni mun gleðja marga á heim­il­inu. Hér er upp­skrift að æðis­legu brauð með rós­marín sem skreyt­ir brauðið sann­ar­lega.

Aðventubrauð með rósmarín

Vista Prenta

Aðventu­brauð með rós­marín

  • 4 dl kalt vatn
  • 1 tsk. salt
  • 25 g ger
  • 200 g dur­um­hveiti
  • 50 g spelt­hveiti
  • 300 g hveiti
  • Hand­fylli ferskt rós­marín
  • ½ msk. flögu­salt
  • ½ dl ólífu­olía

Aðferð:

  1. Settu vatn, salt og ger í skál og pískaðu sam­an þar til allt hef­ur leysts upp.
  2. Bætti við dur­um- og spelt­hveit­inu sam­an við og blandið sam­an.
  3. Bætið þá hveit­inu smátt og smátt sam­an við þar til deigið verður létt í sér.
  4. Setjið deigið í 28 cm smellu­form klætt bök­un­ar­papp­ír.
  5. Klippið litl­ar rós­marín­grein­ar og komið þeim niður í deigið.
  6. Látið deigið hefa sig í kæli yfir nótt.
  7. Stráið flögu­salti yfir og bakið í ofni við 225° í sirka mín­út­ur þar til bakað í gegn.
  8. Takið brauðið úr ofni og dreypið ólífu­olíu yfir áður en borið er fram.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert