Þessi er ómótstæðileg í desember! Mjúk bananakaka með dökku súkkulaði og kanil sem gera kökuna jólalega. Við biðjum ekki um meira í næsta helgarbakstri.
Bananakaka með súkkulaði og kanil
- 75 g kókosolía, bráðnuð
- 3 egg
- 3 þroskaðir bananar
- 45 g kókos heilhveiti
- 1 tsk. lyftiduft
- 1 tsk. kanill
- salt á hnífsoddi
- 1 tsk. vanillusykur
- 75 g dökkt súkkulaði
Aðferð:
- Setjið kókosolíu, egg og banana í matvinnsluvél og blandið saman í góðan massa.
- Bætið möndlumjöli, kókos heilhveiti, lyftidufti, salti, kanil og vanillu í skálina og hrærið blautu hráefnunum saman við.
- Saxið súkkulaðið gróflega og veltið því upp úr deiginu.
- Setjið deigið í bökunarform og bakið við 200°C á blæstri í 30-40 mínútur.
- Látið aðeins kólna áður en borið fram.
mbl.is/Thefoodclub.dk_Ditte Ingemann