Sýndi með brauði hversu skítug lyklaborðin væru

Sláandi staðreyndir um hversu skítug lyklaborðin okkar eru.
Sláandi staðreyndir um hversu skítug lyklaborðin okkar eru. mbl.is/Jaralee Annice Metcalf/Facebook

Kenn­ari nokk­ur notaði brauðsneiðar til að sýna nem­end­um sín­um hversu skít­ug­ar tölvurn­ar þeirra væru, ein­fald­lega til að vekja á því at­hygli og sporna við meiri veik­ind­um í bekkn­um.

Jara­lee Annice Metcalf er kenn­ari í Ida­ho, Banda­ríkj­un­um. Hún vildi árétta við nem­end­ur sína hversu mik­il­vægt það er að þvo sér vel um hend­urn­ar til að drepa bakt­erí­ur og notaði 5 brauðsneiðar í verkið.

Fyrsta brauðsneiðin var ósnert og sett beint í lokaðan poka og merkt „fersk og ósnert“. Brauðsneið núm­er tvö var snert af hverju barni í bekkn­um eft­ir að þau þvoðu sér um hend­urn­ar með vatni og sápu. Á þriðju sneiðinni sem krakk­arn­ir snertu, notuðu all­ir nem­end­urn­ir hand­sótt­hreinsi. Sú fjórða snertu all­ir með óþvegn­ar hend­ur og fimmtu brauðsneiðina nuddaði Jara­lee á lykla­borðið á tölv­un­un­um sem notaðar eru í skóla­stof­unni. Brauðsneiðarn­ar voru all­ar merkt­ar og geymd­ar í 3 vik­ur í lokuðum pok­um.

Tölvurn­ar eru reglu­lega þrifn­ar með hreinsi­klút­um en það var ekki gert í þessu til­viki til að sýna nem­end­um hversu mikið af bakt­erí­um safn­ast þarna fyr­ir. Þrem vik­um seinna mátti sjá slá­andi niður­stöður sem fóru ekk­ert á milli mála, en Jara­lee birti mynd­ir af brauðsneiðunum á Face­book til að segja öll­um for­eldr­um að minna börn­in sín á að þvo sér vel og vand­lega. Og að nota sótt­hreinsi ein­an og sér sé alls ekki nóg.

mbl.is/​Jara­lee Annice Metcalf/​Face­book
mbl.is/​Jara­lee Annice Metcalf/​Face­book
mbl.is/​Jara­lee Annice Metcalf/​Face­book
mbl.is/​Jara­lee Annice Metcalf/​Face­book
mbl.is/​Jara­lee Annice Metcalf/​Face­book
mbl.is/​Jara­lee Annice Metcalf/​Face­book
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert