Svona kælir þú kampavín á augabragði

Gleymdist að kæla búblurnar? Teygðu þig í saltið og málinu …
Gleymdist að kæla búblurnar? Teygðu þig í saltið og málinu er reddað. mbl.is/Colourbox

Það er al­gjör­lega skilj­an­legt að eitt­hvað gleym­ist í und­ir­bún­ingi nýja árs­ins og þar með talið að kæla kampa­vínið. En ekki ör­vænta – við kunn­um ráð við því.

Kampa­vín á að vera um 8-12 gráður þegar það er borið fram og ef þú hef­ur gleymt að setja flösk­una í kæli deg­in­um áður, þá þarft að teygja þig í saltið.

Fylltu ís­fötu með klök­um og vatni og bættu við 2 msk af salti. En þessi blanda mun setja flösk­una í rétt hita­stig á inn­an við 30 mín­út­um.

Ísmol­arn­ir eru nefni­lega ekki þeir sem luma á öll­um trix­un­um, því kalda vatnið hjálp­ar þar til og saltið lækk­ar frost­punkt­inn á vatn­inu til mun­ar. Sjáið bara til þess að flask­an sé að mestu leyti hul­in vatni og ís­mol­um á meðan þið kælið hana.

Gleðilegt nýtt ár!
Gleðilegt nýtt ár! mbl.is/​Colour­box
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert