Hvaða drykk ætlar þú að skála í inn í nýja árið? Kampavíns-mojito er bæði smart og bragðgóður drykkur fyrir þá sem elska búblur. Þennan drykk má skreyta með greni eða jafnvel berjum af ýmsum toga til að fá smá lit í glasið.
Skálað í kampavíns-mojito
- 5 mintulauf
- 25 ml romm
- Safi úr ½ lime
- 1 msk. sykursýróp
- Nokkrir dropar af Angostura
- Kampavín
- Ísmolar
Aðferð:
- Setjið nokkrar ísmola í glas. Leggið myntulaufin í lófann á annari hendi og veltið síðan glasinu yfir á myntulaufin – þannig mun „skerast“ hæfilega mikið í laufin án þess að þau verði bitur.
- Setjið myntuna í glasið og hellið því næst romminu, lime, sýrópið og Angostura yfir.
- Hrærið varlega í og fyllið glasið upp með kampavíni.