Það er eitthvað stórkostlegt sem gerist þegar humar, beikon og yndisaukandi sósa mætast í ekkert venjulegri pítu. Hildur Rut á allan heiðurinn af þessari uppskrift, en innblástur í réttinn sótti hún í samloku sem eitt sinn fékkst á Rabbarbarnum meðan hann var og hét.
Ógleymanleg píta með humri (fyrir 3-4)
- Pítubrauð frá Hatting
- 500 g skelflettur humar, frosinn
- 2-3 msk fersk steinselja, söxuð
- 2 lítil hvítlauksrif, pressuð
- 1 msk. ferskur sítrónusafi
- 1-2 msk. ólífuolía
- salt og pipar
- smjör til steikingar
- 8-12 sneiðar af beikoni (eftir smekk)
- kokteiltómatar, skornir í sneiðar
- klettasalat
Basilsósa:
- 2-3 dl fersk basilíka
- 4 msk. majónes, ég notaði frá Hellmann
- 2 msk. sýrður rjómi
- 1 msk. hunang
- 1-2 msk safi úr ferskri sítrónu
- salt og pipar
Aðferð:
- Veltið humrinum upp úr steinselju, hvítlauk, sítrónusafa, ólífuolíu, salti og pipar.
- Bakið beikonið í 8-10 mínútur við 200°C eða þar til það er orðið vel stökkt.
- Á meðan beikonið er að bakast steikið þið humarinn upp úr smjöri, tekur örfáar mínútur.
- Hitið Hatting-pítubrauðið í ofninum eða í brauðristinni.
- Útbúið basilsósuna. Ég blanda öllu saman með töfrasprota en það er ekkert mál að saxa basilíkuna smátt og blanda öllu saman með skeið.
- Fyllið pítubrauðið með sósu, klettasalati, tómötum, beikonsneiðum og humri eftir smekk.
mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir