Himneskur kjúklingaréttur á hálftíma

Stórkostlegur kjúklingaréttur á 30 mínútum - við biðjum ekki um …
Stórkostlegur kjúklingaréttur á 30 mínútum - við biðjum ekki um meira. mb.is/Damndelicious.net

Kjúk­linga­rétt­ur í sinni allra bestu mynd er hér á borðunum – kryddaður með nýkreist­um sítr­ónusafa og dilli. Þú eyðir litl­um 30 mín­út­um í að elda og ekki mín­útu leng­ur en það.

Himneskur kjúklingaréttur á hálftíma

Vista Prenta

Himnesk­ur kjúk­linga­rétt­ur á hálf­tíma

  • 700 g kjúk­linga­læri frá Ali, bein­laus
  • sjáv­ar­salt og pip­ar — við not­um Norður­salt
  • 5½ msk hveiti
  • 1 msk. repju­olía
  • 1 msk. ósaltað smjör
  • 1 bolli kjúk­lingakraft­ur
  • 2 msk. nýkreist­ur sítr­ónusafi
  • 2 msk. ferskt dill, saxað

Aðferð:

  1. Kryddið kjúk­ling­inn með salti og pip­ar og veltið hon­um upp úr 4 msk. af hveiti.
  2. Hitið ol­í­una og smjörið á pönnu.
  3. Steikið kjúk­ling­inn á pönn­unni í 4-5 mín­út­ur á hvorri hlið, þar til gyllt­ur og gegn­um­steikt­ur. Setjið kjúk­ling­inn til hliðar á disk og lækkið í meðal­hita und­ir pönn­unni.
  4. Pískið rest­ina af hveit­inu (1½ msk) í sirka eina mín­útu á pönn­unni. Bætið þá kjúk­lingakrafti og sítr­ónusafa sam­an við og leyfið suðunni að koma upp – hrærið jafnt og þétt í á meðan. Sós­an ætti að þykkna eft­ir u.þ.b. þrjár mín­út­ur. Bætið þá dill­inu sam­an við og saltið og piprið.
  5. Setjið kjúk­ling­inn aft­ur á pönn­una og berið strax fram.

Upp­skrift frá: Damn Delicious®

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert