Helstu merki þess að þú sért með hreingerningaráráttu

Hér er góður tékklisti að fara í gegnum til að …
Hér er góður tékklisti að fara í gegnum til að sjá hvort þú sért í raun og veru með hreingerningaráráttu. mbl.is/Colourbox

Við þurf­um öll að þrífa heima hjá okk­ur en hversu oft þríf­um við þar til við telj­umst vera kom­in með hrein­gern­ing­ar­áráttu? Ef þú hef­ur ekki tölu á því hversu mikl­um tíma þú eyðir í þrif, þá skaltu lesa nán­ar hér.

Þú ert alltaf með tusk­una á lofti
Þurrka af borðinu, þurrka af vask­in­um, pússa speg­il­inn, ryk­suga, þurrka aft­ur af borðinu, banka í púðana í sóf­an­um...hinn ei­lífi þrif­hring­ur sem þú kemst ekki út úr.

Ekk­ert stopp­ar þig
Það er sama hvort um aðfanga­dags­kvöld sé að ræða eða af­mæli, þá læt­ur þú ekk­ert stoppa þig ef þú rekst á blett ein­hvers staðar sem þarf að þurrka og þú geng­ur beint til verks.

Ný hreinsi­efni gleðja þig
Þú færð fiðring í mag­ann þegar þú frétt­ir af nýj­um frá­bær­um hreinsi­efn­um og get­ur ekki beðið með að prófa efnið heima hjá þér.

Vor­hrein­gern­ing er mýta
Vor­hrein­gern­ing fer fram sirka einu sinni í viku heima hjá þér. Því er þessi út­list­un um þrif eft­ir árstíð al­gjör mýta. Heima hjá þér kall­ast þetta ein­fald­lega „þrif“.

Börn og gælu­dýr eru ekki á vin­sældal­ist­an­um
Það leik­ur um þig smá „hryll­ing­ur“ að hugsa til þess þegar vin­ur tek­ur gælu­dýrið sitt með í heim­sókn eða barn kem­ur í heim­sókn með kex í hend­inni. Bíttu í tung­una og fáðu út­rás þegar gest­irn­ir eru farn­ir heim.

Það eru skýr­ar regl­ur um hvernig eigi að þrífa heima hjá þér
Þú ert með ákveðnar vinnu­regl­ur um hvar eigi að byrja og svo koll af kolli. Eins hvaða hreinsi­efni megi nota á hverj­um stað fyr­ir sig og ef ein­hver ætl­ar að stíga inn í og skipta sér af þá...

Þú þríf­ur áður en gest­irn­ir koma, ekki eft­ir að þeir fara
Heim­ilið þitt er það snyrti­leg­asta í öll­um vina­hópn­um – samt þríf­ur þú áður en vin­irn­ir koma. Fólk sem er ekki með hrein­gern­ing­ar­áráttu skil­ur ekki að það er full­kom­lega eðli­legt að þrífa tvo daga í röð.

Þú not­ar dýr­ustu og fín­ustu græj­urn­ar
Þú átt eða ósk­ar að þú ætt­ir kraft­mestu ryk­sug­una og nýj­ustu örtrefja­klút­ana – það er ekk­ert sem stopp­ar þig.

Þú tek­ur alltaf til eft­ir gleðskap áður en þú ferð í rúmið
Sum­ir elska að narta í mat eft­ir gott partí á meðan aðrir taka einn drykk til. En þú vilt bara helst byrja á að taka til. Bara aaaðeins að þurrka af borðinu og setja uppþvotta­vél­ina af stað. En mak­inn þinn elsk­ar þig fyr­ir þessa fram­taks­semi þó að hann skilji ekki hvar þú fáir ork­una til þess.

Þú ert með lagalista við þrif­in
Sum­ir eiga sinn lagalista þegar þeir fara út að hlaupa – þú átt þinn lagalista þegar þú þríf­ur.

Allt er skín­andi hreint
Það er alltaf allt í topp­st­andi heima hjá þér, því um leið og þú kem­ur auga á blett­inn gríp­ur þú tusk­una. Þú gæt­ir boðið drottn­ingu heim til þín og hún myndi ekki hafa yfir neinu að kvarta.

Þessi lætur ekkert stoppa sig í þrifum.
Þessi læt­ur ekk­ert stoppa sig í þrif­um. mbl.is/​Colour­box
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert