Eina snúðauppskriftin sem þú þarft að kunna

Snúðauppskrift sem þú verður að prófa - þessa muntu vilja …
Snúðauppskrift sem þú verður að prófa - þessa muntu vilja gera aftur og aftur. mbl.is/Anneauchocolat.dk

Þessi snúðaupp­skrift er geggjuð! Og það besta er að þú get­ur preppað hana dag­inn áður og skellt inn í ofn þegar hent­ar dag­inn eft­ir. Hér er í raun um kanil­snúðaköku að ræða með fyll­ingu sem mun slá í gegn.

Eina snúðauppskriftin sem þú þarft að kunna

Vista Prenta

Eina snúðaupp­skrift­in sem þú þarft að kunna

  • 270 ml mjólk
  • 10 g ger
  • 40 g syk­ur
  • 2 egg
  • 140 g smjör
  • ½ tsk. salt
  • 650 g hveiti
  • 1 pískað egg til að pensla

Fyll­ing:

  • 150 g smjör, mjúkt
  • 75 g syk­ur
  • 75 g púður­syk­ur
  • 3 msk. kanill

Aðferð:

  1. Hitið mjólk­ina og bætið sykri og geri sam­an við. Hrærið sam­an.
  2. Bræðið smjörið og látið kólna ör­lítið. Bætið eggj­um sam­an við og því næst smjör­inu á meðan hrært er í. Því næst kem­ur salt og hveitið út í, smátt og smátt. Þegar allt hveitið er komið út í, látið þá vél­ina hnoða áfram í smá tíma.
  3. Rúllið deig­inu út í fer­hyrn­ing á hveitilagt borð. Smyrjið jöfnu lagi af krem­inu ofan á. Rúllið deig­inu upp í langa pylsu og setjið inn í frysti í 15 mín­út­ur. Ef deigið virk­ar mjög lint í sér er fínt að skera það til helm­inga og setja inn í frysti.
  4. Blandið öll­um hrá­efn­um sam­an í fyll­ing­una.
  5. Skerið því næst rúll­una í 22-24 snúða og raðið þeim í smurt smellu­form (24 cm) og tvö minni eld­föst mót eða 1 stærra. Setjið plast­filmu yfir formin og inn í ís­skáp yfir nótt.

Dag­inn eft­ir:

  1. Takið snúðana úr kæli og látið standa á borði í 1,5-2,5 tíma.
  2. Hitið ofn­inn í 190°C á blæstri.
  3. Penslið snúðana með eggi og bakið í ofni í 30-35 mín­út­ur þar til gyllt­ir á lit.
  4. Berið fram nýbakað og þá gjarn­an með glassúr á toppn­um.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert