Svona þrífur þú eftir gott partí

Ef þú hefur orku til skaltu fylgja þessum ráðum þegar …
Ef þú hefur orku til skaltu fylgja þessum ráðum þegar partínu lýkur. Þú munt þakka sjálfum þér fyrir daginn eftir. mbl.is/Colourbox

Ef gleðskap­ur­inn var góður verða timb­ur­menn­irn­ir það ef­laust líka dag­inn eft­ir. Og eft­ir gott partí ligg­ur klár­lega nóg af glös­um og öðru rusli sem þarf að þrífa og gott er að gera áður en þú ferð að sofa. 

Hér eru nokk­ur lauflétt ráð um hvernig þú þríf­ur eft­ir gott partí, jafn­vel í ann­ar­legu ástandi. Mundu bara að renna í gegn­um þessi atriði, það mun klár­lega hjálpa til í þynn­kunni dag­inn eft­ir.

Ekki bera allt ruslið í tunn­una, taktu rusla­pok­ann að rusl­inu
Byrjaðu á því að taka all­ar dós­ir og flösk­ur sem liggja uppi á borðum og settu í stór­an rusla­poka. Taktu ann­an poka og skafðu all­ar mat­ar­leif­ar af disk­un­um sem liggja í stof­unni. Settu pok­ana til hliðar og virtu fyr­ir þér hversu dug­leg/​ur þú hef­ur verið til þessa.

Hreinsaðu til í eld­hús­inu
Sjáðu til þess að eld­hús­bekk­ur­inn sé hreinn og fínn og strjúktu með tusk­unni af eld­hús­borðinu sjálfu. Þetta er mik­il­vægt fyr­ir það sem koma skal.

Raðaðu sam­an
Færðu þig aft­ur inn í stofu eða borðstofu þar sem flest­öll glös­in og disk­arn­ir liggja. Byrjaðu að raða sam­an disk­um, glös­um og hnífa­pör­um. Taktu fyrst disk­ana með inn í eld­hús og settu í uppþvotta­vél­ina og því næst glös­in og svo koll af kolli. Ef þú ert í stuði get­ur þú vaskað upp það sem ekki kemst í vél­ina eða raðað skít­ugu leirtauinu sam­an við vaskinn og beðið eft­ir að vél­in klári sitt.

Settu hús­gögn­in á sinn stað
Raðaðu stól­um og borðum aft­ur á sinn stað, taktu eitt rými fyr­ir í einu. Þú ert al­veg að verða bú­inn með verkið!

Moppaðu yfir gólfið
Núna er ekk­ert eft­ir nema renna aðeins yfir gólfið – taktu eitt rými fyr­ir í einu. Þurrkaðu með blautri tusku yfir verstu blett­ina því þú skúr­ar yfir gólfið á morg­un í ró­leg­heit­un­um.

Það er geggjað að halda partí, en aðeins minna skemmtilegt …
Það er geggjað að halda partí, en aðeins minna skemmti­legt að þurfa að taka til eft­ir slíkt. mbl.is/​Colour­box
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert