Ketóvæna blómkálsgratínið sem passar með öllu

Hér erum við með æðis­leg­an rétt sem pass­ar bæði sem aðal­rétt­ur og meðlæti. Blóm­kál nýt­ur ein­mitt mik­illa vin­sælda þessi dægrin (eins og reynd­ar alltaf) og ekki spill­ir fyr­ir að rétt­ur­inn er ketóvænn.

Ketóvæna blómkálsgratínið sem passar með öllu

Vista Prenta

Ketóvæna blóm­káls­gratínið sem pass­ar með öllu

  • 1,5-2 blóm­káls­höfuð (eft­ir stærð)
  • 2 pakk­ar TORO bernaise-sósa
  • 4 dl rjómi
  • 1 pakki skinka
  • 2 púrru­lauk­ar
  • 100 g smjör
  • Rif­inn ost­ur


Sjóðið (eða gufu­sjóðið) blóm­kálið í söltuðu vatni í stutta stund, þar til það verður aðeins mjúkt. Skerið hvorn púrru­lauk í um það bil 4 langa bita og rúllið bit­un­um upp í skinkusneiðarn­ar. Skiptið blóm­kál­inu niður og raðið í eld­fast form ásamt skin­kunni og púrru­laukn­um og kryddið með Bezt á flest eða salti og pip­ar. Bræðið smjörið í potti og hrærið inni­haldi TORO bernaise-sós­unn­ar í smjörið. Hellið síðan rjóm­an­um út í og hrærið vel sam­an. Leyfið suðunni að koma upp við væg­an hita. Hellið síðan sós­unni yfir blóm­kálið og skink­una í eld­fasta mót­inu og stráið ost­in­um yfir. Bakið í ca. 20 mín­út­ur í miðjum ofni við 180°C eða þar til ost­ur­inn verður gull­in­brúnn. 

Berið fram með ristuðu brauði eða njótið eins og sér (ketó). 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert