Svona losnar þú við raka á rúðunum

Myndast raki og bleyta í gluggunum heima hjá þér?
Myndast raki og bleyta í gluggunum heima hjá þér? mbl.is/Colourbox

Þú kann­ast kannski við að vakna á morgn­ana og all­ir glugg­ar eru hálf­blaut­ir af raka. Hér eru nokk­ur ráð um hvernig megi bera sig að til að koma í veg fyr­ir þetta leiðinda­vanda­mál.

Ryk og raki á rúðum get­ur nefni­lega valdið skemmd­um og það geta byrjað að mynd­ast svepp­ir í körm­un­um. Hvort tveggja skap­ar óheilsu­sam­legt lofts­lag á heim­il­inu og að þessu ber að gæta.

  • Sjáðu til þess að lofta út og fáðu gegn­um­trekk á heim­il­inu – dag­lega, og jafn­vel tvisvar á dag.
  • Þurrkaðu alltaf með eld­húsrúllu eða tusku jafnóðum og þú sérð að raki byrj­ar að mynd­ast á gler­inu.
  • Ofn­ar und­ir glugg­um koma að góðum not­um (ef þú ert með kveikt á þeim). Þeir sjá til þess að loftið hald­ist þurrt þegar það mæt­ir köld­um glugg­an­um og þá mynd­ast síður raki.
  • Reynið að halda sama hita­stig­inu í gegn­um allt húsið. Það er ekki gott að hafa eitt eða tvö her­bergi í hús­inu með enga kynd­ingu.
  • Er kannski kom­inn tími til að skipta um gler í glugg­un­um? Gaml­ir glugg­ar eru ekki gædd­ir sömu ein­angr­un­ar­eig­in­leik­um og nýir.
  • Fáðu þér raka­mæli. Loftrak­inn á ekki að vera hærri en 50-55% yfir vetr­ar­tím­ann.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert