Hunangsgljáður lax með geggjuðu meðlæti

Frábær uppskrift að laxi með ristuðu grænmeti.
Frábær uppskrift að laxi með ristuðu grænmeti. mbl.is/Howsweeteats.com

Við lát­um ekki svona upp­skrift úr hendi sleppa. Hér er lax­inn mar­in­eraður og bor­inn fram með ristuðu rósa­káli. Það má endi­lega bæta hrís­grjón­um eða kart­öfl­um með á disk­inn – eða því sem hug­ur­inn girn­ist.

Hunangsgljáður lax með geggjuðu meðlæti

Vista Prenta

Hun­angs­gljáður lax með geggjuðu meðlæti

  • 4 hvít­lauksrif, mar­in
  • ¼ bolli sojasósa
  • 1/​3 bolli hun­ang
  • Nýmalaður pip­ar
  • 900 g lax (eða hvaða fisk­ur sem þú vilt)
  • 450 g rósa­kál, skorið til helm­inga eða í fjóra bita
  • Sítr­óna skor­in í báta, til að kreista yfir rétt­inn eft­ir smekk
  • Fersk­ar jurtir eins og basilika, or­egano eða graslauk­ur til að skreyta

Aðferð:

  1. Hitið ofn­inn í 220°C. Setjið bök­un­ar­papp­ír á bök­un­ar­plötu.
  2. Takið fram litla skál og pískið hvít­lauk, sojasósu og hun­ang.
  3. Leggið lax­inn fyr­ir miðju á bök­un­ar­plöt­unni.
  4. Setjið rósa­kálið (skorið í bita) í skál og hellið helm­ingn­um af hun­angs­blönd­unni yfir. Penslið síðan rest­inni af blönd­unni yfir lax­inn og piprið. Og ef eitt­hvað er eft­ir af blönd­unni get­ur þú penslað aft­ur yfir lax­inn eft­ir að hann bak­ast.
  5. Ristið lax­inn og rósa­kálið í ofni í 15 mín­út­ur þar til lax­inn fer auðveld­lega í sund­ur með gaffli og rósa­kálið er byrjað að fá á sig kara­mell­ug­ljáa.
  6. Skerið lax­inn í bita og berið fram með rósa­káli, fersk­um kryd­d­jurt­um og sítr­ónu­bát­um.

Upp­skrift: How Sweet Eats

mbl.is/​Howsweeteats.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert