Klassískt matarstell fær upplyftingu

Dásamlega fallegir litir í nýju matarstelli frá Lyngby.
Dásamlega fallegir litir í nýju matarstelli frá Lyngby. mbl.is/© Lyngby Porcelæn

Póstu­líns­fram­leiðand­inn Lyng­by hef­ur kynnt nýtt og lit­ríkt mat­ar­stell til sög­unn­ar sem mun setja stemn­ing­una á borðið.

Hvítt og klass­ískt – það eru ná­kvæm­lega orðin til að lýsa mat­ar­stell­inu Rhom­be sem fram­leitt er af Lyng­by Porcelæn, en fyr­ir­tækið hef­ur í sam­starfi við Stil­le­ben fært það í nýj­an bún­ing. Við erum að sjá stór­kost­lega litap­all­ettu!

Stil­le­ben er þekkt fyr­ir að reka tvær versl­an­ir í Kaup­manna­höfn en kon­urn­ar sem standa á bak við versl­un­inna hafa komið víða við þegar kem­ur að því að hanna alls kyns vör­ur. Þær hönnuðu meðal ann­ars hinn þekkta rönd­ótta Omaggio-vasa sem við þekkj­um svo vel.

Og nú má sjá mat­ar­stellið í nú­tíma­út­gáfu – sem hæf­ir nýj­um ára­tug ansi vel. Stellið verður fá­an­legt frá og með miðjum fe­brú­ar.

Nýju litina hannaði teymið sem stendur á bak við Stilleben-verslanirnar …
Nýju lit­ina hannaði teymið sem stend­ur á bak við Stil­le­ben-versl­an­irn­ar í Kaup­manna­höfn. mbl.is/© ​Lyng­by Porcelæn
mbl.is/© ​Lyng­by Porcelæn
Stellið er í raun ekki alveg nýtt en hefur hingað …
Stellið er í raun ekki al­veg nýtt en hef­ur hingað til ein­göngu verið fá­an­legt sem hvítt á lit­inn. mbl.is/© ​Lyng­by Porcelæn
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert