Geggjuð uppskrift að spaghettí carbonara

Stórgóður réttur! Spaghettí carbonara af bestu gerð.
Stórgóður réttur! Spaghettí carbonara af bestu gerð. mbl.is/alt.dk_Thomas Hergaard

Við bjóðum þessa dá­sam­legu upp­skrift að hvers­dags­mat kær­lega vel­komna á borðið. Spaghettí car­bon­ara eins og þú færð á Ítal­íu og get­ur svo sann­ar­lega ekki klikkað.

Geggjuð uppskrift að spaghettí carbonara

Vista Prenta

Fín­asta upp­skrift að spaghettí car­bon­ara

  • 250 g ferskt pasta (eða þurrt)
  • 125 g bei­kon
  • 250 g ferskt spínat
  • 2-3 egg
  • 2-3 msk. mjólk eða rjómi
  • 50 g par­mes­an
  • Salt og pip­ar

Aðferð:

  1. Steikið bei­konið stökkt á pönnu og leyfið fit­unni að leka af á eld­húsrúllu.
  2. Pískið egg sam­an við mjólk eða rjóma og rif­inn par­mes­an.
  3. Sjóðið pastað sam­kvæmt leiðbein­ing­um. Setjið spínatið út í vatnið síðustu mín­út­una af suðutím­an­um. Hellið síðan vatn­inu af.
  4. Með pastað og spínatið enn þá í pott­in­um, bætið söxuðu bei­koni sam­an við og eggja­blönd­unni. Smakkið til með salti og pip­ar.
  5. Berið strax fram með extra par­mes­an og góðu brauði.

Upp­skrift: Hendes Ver­d­en

mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert