Keto pizza með chorizo, klettasalati og parmesan

Ljósmynd/Valla

Hún Valla er hluti af öfl­ugu mat­ar­blogg­arat­eymi á GRGS.is sem er (eins og alþjóð veit) í um­sjón eld­hús­gyðjunn­ar Berg­lind­ar Guðmunds­dótt­ur.

Valla seg­ist hafa prófa alls kon­ar lág­kol­vetnap­izzu­botna en þessi sé í al­gjöru upp­á­haldi en hún kall­ar hann klass­íska blóm­káls­botn­inn.

„Hann er frek­ar fljót­leg­ur, svona miðað við að það þarf ekk­ert að hefa eða neitt slíkt. Einnig finnst mér mik­ill kost­ur við blóm­kálið að hafa trefjarn­ar auk þess sem heild­ar­hita­ein­inga­fjöldi er lægri en í öðrum keto botn­um líkt og þegar “fat head”-deig er notað.

Ost­ur­inn sem ég nota hér er mozzar­ella frá Örnu en hann inni­held­ur auðvitað eng­in kol­vetni. Mér finnst hann henta sér­lega vel í þenn­an botn þar sem hann bráðnar vel en held­ur samt nógu stöðugur í botn­in­um.“

Keto pizza með chorizo, klettasalati og parmesan

Vista Prenta

Keto pizza með chorizo, kletta­sal­ati og par­mes­an

  • 1 miðlungs stórt blóm­káls­höfuð
  • 150 g mozzar­ella með pip­ar frá Örnu
  • 1 egg
  • ¼ tsk. sjáv­ar­salt
  • ¼ tsk. hvít­lauks­duft
  • ½ tsk. or­egano
  • Chorizo-pylsa í sneiðum
  • Rif­inn mozzar­ella frá Örnu
  • Kletta­sal­at
  • Par­mes­an-ost­ur

Heima­gerð syk­ur­laus pizzasósa

  • 1 dós saxaðir tóm­at­ar
  • ¼ tsk. hvít­lauks­duft
  • ¼ tsk. sjáv­ar­salt
  • ½ tsk. or­egano
  • ½ tsk. basilika þurrkuð
  • chili­duft á hnífsoddi

Setjið tóm­at­ana í sigti og leyfið svo­litlu af vökv­an­um að renna af. Setjið allt í mat­vinnslu­vél eða blandið með töfra­sprota. Þá er sós­an bara til­bú­in!

Leiðbein­ing­ar

1. Hakkið blóm­kálið mjög smátt í mat­vinnslu­vél, þar til það er orðið að fín­gerðum blóm­káls­grjón­um

2. Setjið blóm­kálið í skál sem þolir ör­bylgju­ofn og hitið á hæsta hita í 5-6 mín.

3. Takið skál­ina út, passið ykk­ur að vera í ofn­hönsk­um! Setjið blóm­kálið á hreint visku­stykki og kælið aðeins. Pakkið blóm­kál­inu inn í visku­stykkið og vindið upp á það. Reynið að vinda all­an vökva úr kál­inu. Því þurr­ara sem það er því betra.

4. Setjið blóm­kálið í skál og bætið við osti, eggi og krydd­um. Hrærið vel sam­an, mér finnst gott að nota hend­urn­ar til þess að hnoða þessu sam­an.

5. Setjið bök­un­ar­papp­ír á bök­un­ar­plötu, setjið deigið á plöt­una og mótið pizza­botn sem er sirka 12 - 14.

6. Hitið ofn­inn í 220°C og bakið botn­inn í 15 mín. Takið botn­inn út og snúið hon­um við og bakið áfram í 3 mín.

7. Takið botn­inn út úr ofn­in­um og setjið syk­ur­lausa pizzasósu, mozzar­ella frá Örnu eft­ir smekk og raðið chorizo-sneiðum ofan á.

8. Setjið aft­ur inn í ofn og bakið þar til ost­ur­inn er orðinn gyllt­ur.

9. Stráið kletta­sal­ati eft­ir smekk yfir pizzuna og rífið par­mesanost yfir.

Ljós­mynd/​Valla
Ljós­mynd/​Valla
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert