Geggjaður rjómalagaður ketókjúklingur

Ljósmynd/Helena Gunnarsdóttir

Al­gjör­lega skot­held upp­skrift hér á ferð frá Gott í mat­inn. Að venju klikk­ar Helena Gunn­ars ekki og út­kom­an er hreint sæl­gæti.

Geggjaður rjómalagaður ketókjúklingur

Vista Prenta

Rjóma­lagaður ketókjúk­ling­ur með dijons­inn­epi

4 skammt­ar

  • 800 g úr­beinuð kjúk­linga­læri
  • 1 stk. rauðlauk­ur
  • 1 msk. timí­an (ferskt eða þurrkað)
  • 1 dl hvít­vín (má sleppa og nota bara kjúk­linga­soð)
  • 2 dl kjúk­linga­soð (vatn og kjúk­lingakraft­ur)
  • 2 dós­ir sýrður rjómi 36% frá Gott í mat­inn
  • 2 msk. dijons­inn­ep (2-3 msk. og gott að nota gróft og venju­legt til helm­inga)
  • salt og pip­ar
  • smjör til steik­ing­ar
  • fersk stein­selja

Aðferð:

  1. Byrjið á að hita pönnu með dá­litlu smjöri, kryddið kjúk­ling­inn með salti og pip­ar og steikið báðum meg­in þar til vel brúnaður. Setjið á disk og lækkið aðeins hit­ann á pönn­unni.
  2. Steikið lauk­inn í 2-3 mín­út­ur eða þar til hann mýk­ist aðeins. Kryddið með timí­an, salti og pip­ar.
  3. Hellið hvít­víni og kjúk­linga­soði á pönn­una, skafið vel botn­inn og leyfið að sjóða í nokkr­ar mín­út­ur.
  4. Bætið þá sýrða rjóm­an­um út á ásamt dijons­inn­epi. Leyfið aðeins að malla og smakkið til.
  5. Setjið að lok­um kjúk­ling­inn út í sós­una og leyfið að eld­ast í um það bil 10 mín­út­ur við meðal­hita.
  6. Stráið ferskri stein­selju yfir að lok­um og berið fram.

Höf­und­ur upp­skrift­ar er Helena Gunn­ars­dótt­ir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert