Eggjakakan sem þykir sú allra besta

Eggjakaka með beikoni, kartöflum og grófu pestói - namm!
Eggjakaka með beikoni, kartöflum og grófu pestói - namm! mbl.is/Winnie Methmann_Femina.dk

Þessi snilld er svo ljúf­feng og mat­ar­mik­il að hún dug­ar fyr­ir fjóra svanga maga – og er þá til­val­in sem létt­ur rétt­ur að kvöldi. Hér er eggjakaka í allri sinni mynd með bei­koni, kart­öfl­um og pestó.

Eggjakakan sem þykir sú allra besta

Vista Prenta

Eggjakaka sem þú borðar í kvöld­mat

  • 200 g kart­öfl­ur
  • 6 egg
  • 1 dl mjólk
  • Salt og pip­ar
  • 100 g bei­kon
  • Gróft brauð

Gróft pestó:

  • 50 g möndl­ur
  • Fersk basilika
  • 25 g par­mes­an

Aðferð:

  1. Hitið ofn­inn í 200°C.
  2. Sjóðið kart­öfl­urn­ar, skrælið og skerið í grófa bita.
  3. Pískið egg og mjólk sam­an og kryddið með salti og pip­ar. Steikið bei­konið á pönnu og látið fit­una leka af á eld­húspapp­ír. Hellið því næst eggja­blönd­unni á pönn­una og dreifið kart­öfl­un­um yfir. Setjið inn í ofn í 20 mín­út­ur.
  4. Pestó: Ristið möndl­urn­ar létt á þurru pönnu. Saxið basilik­una og rífið niður par­mes­an-ost­inn. Blandið öllu sam­an í skál.
  5. Toppið eggja­kök­una með bei­koni og grófu pestó. Berið fram með ristuðu góðu brauði.

Upp­skrift: Emma Mart­iny

mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert