Svona mýkir þú smjör á augabragði

Það tekur smjör um klukkutíma að ná stofuhita en við …
Það tekur smjör um klukkutíma að ná stofuhita en við kunnum trix til að flýta fyrir ferlinu. mbl.is/Colourbox

Flest okk­ar hafa lent í því að lesa ekki al­veg upp­skrift­ina í gegn áður en við byrj­um að baka og smjörið er allt of hart. Það tek­ur í kring­um klukku­tíma fyr­ir smjör að ná stofu­hita ef þú legg­ur það á eld­hús­borðið.

Við ætt­um að vita að í flest­öll­um bakstri er not­ast við smjör við stofu­hita en virðumst samt alltaf gleyma því. En hvað er til ráða þegar löng­un í súkkulaðibita­kök­ur gríp­ur yf­ir­hönd­ina og eina sem stend­ur í vegi fyr­ir bakstri er allt of kalt smjör?

Þá dreg­ur þú ein­fald­lega fram hníf og skerð smjörið í litla bita og set­ur á disk. Með þessu móti spar­ar þú í það minnsta þrjú kortér af ann­ars ein­um klukku­tíma sem það tek­ur fyr­ir smjörið að mýkj­ast.

Ef þú ert svo óþol­in­móð/​ur að þú get­ir ekki beðið í um það bil kortér er ráð að setja disk­inn inn í ör­bylgju­ofn á lægstu still­ingu. Og þá bara í nokkr­ar sek­únd­ur í einu. Hér ber þó að var­ast, því þú gæt­ir óvart brætt smjörið í staðinn fyr­ir að mýkja það.

mbl.is/​Colour­box
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert