Þess vegna áttu að snúa hamborgaranum á hvolf

Hvernig setur þú borgarann á milli tannanna? Nýjustu fréttir herma …
Hvernig setur þú borgarann á milli tannanna? Nýjustu fréttir herma að við eigum að snúa borgaranum á hvolf! mbl.is/Colourbox

Hvernig borðar þú ham­borg­ar­ann þinn? Not­ar þú hend­urn­ar eða hníf og gaffal? Nýj­ustu frétt­ir herma að við eig­um að snúa ham­borg­ar­an­um á hvolf.

Við vit­um hvernig á að setja sam­an ham­borg­ara. Fyrst er það þunn­ur botn­inn með sósu af ein­hverju tagi, svo sal­at, kjötið sjálft, meira græn­meti, sósa og svo lokið á brauðinu. En það er akkúrat þessi aðferð sem út­skýr­ir af hverju sós­an byrj­ar að leka niður hand­legg­inn og botn­inn moln­ar í sund­ur. Botn­inn tek­ur á móti öll­um saf­an­um sem kem­ur af kjöt­inu, græn­met­inu og sós­unni og bleyt­ir þar af leiðandi þunn­an brauðbotn­inn þegar við borðum ham­borg­ar­ann.

Ef við snú­um aft­ur á móti ham­borg­ar­an­um á hvolf mun þykka brauðlokið halda saf­an­um í skefj­um. Sér­fræðing­ar vilja meina að þú breyt­ir upp­lif­un­inni með því að snúa borg­ar­an­um á hvolf. Og við eig­um að sýna smá þol­in­mæði þegar kem­ur að því að setja borg­ar­ann á milli tann­anna. Best sé að leyfa hon­um að hvíla í 1 mín­útu eft­ir að þú snýrð hon­um við. Þannig nær saf­inn að velta sér í hina átt­ina og þú eyk­ur lík­urn­ar á að borg­ar­inn þinn verði enn meira djúsí en ella.

Ertu týpan sem borðar hamborgara með hnífapörum?
Ertu týp­an sem borðar ham­borg­ara með hnífa­pör­um? mbl.is/​Colour­box
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert