Frábær útfærsla á pítsukvöldi fjölskyldunnar

Það er frábær hugmynd að allir fái að gera pizzu …
Það er frábær hugmynd að allir fái að gera pizzu við sitt hæfi. mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir

Föstu­dags­kvöld eru lög­bund­in pizza­kvöld á mörg­um heim­il­um lands­ins. Það eru þó ekki all­ir sam­mála um hvað bragðlauk­arn­ir vilja hverju sinni, en Hild­ur Rut gef­ur okk­ur sína út­gáfu á því hvernig fjöl­skyld­an kemst að góðri niður­stöðu.

Hild­ur Rut not­ar lít­il pizza­deig frá Hatt­ing þar sem hver og einn set­ur sitt upp­á­hald á sína pizzu. „Þess­ar pizz­ur eru all­ar dá­sam­lega góðar. Mæli með að hver og einn setji sitt topp­ing á pizzurn­ar. Kletta­sal­at, kokteil­tóm­at­ar, avóka­dó, basilika, par­mes­an og stein­seljusós­an pass­ar með öll­um pizz­un­um,“ seg­ir Hild­ur.

Frábær útfærsla á pítsukvöldi fjölskyldunnar

Vista Prenta

All­ir fá sína eig­in pizzu á föstu­dög­um

Pizza með ris­arækj­um

  • 1 lít­ill pizza­botn frá Hatt­ing
  • 6-8 ris­arækj­ur
  • 1 hvít­lauksrif
  • Chili exp­losi­on
  • Salt & pip­ar
  • Ólífu­olía
  • Rjóma­ost­ur
  • Rif­inn mozzar­ella ost­ur
  • Kletta­sal­at
  • Kokteil­tóm­at­ar
  • Rif­inn par­mes­an

Aðferð:

  1. Hrærið ris­arækj­urn­ar sam­an við ólífu­olíu, pressað hvít­lauksrif, chili exp­losi­on, salt og pip­ar. Steikið ris­arækj­urn­ar upp úr ólífol­íu.
  2. Smyrjið pizza­botn­inn með rjóma­osti og stráið rifn­um mozzar­ella yfir.
  3. Dreifið ris­arækj­un­um ofan á og bakið í 6-8 mín­út­ur við 230°C.
  4. Toppið að lok­um pizzuna með kletta­sal­ati, kokteil­tómöt­um og rifn­um par­mes­an.

Pizza með kjúk­lingi og avóka­dó

  • 1 lít­ill pizza­botn frá Hatt­ing
  • Maukaðir tóm­at­ar úr krukku
  • Heitt pizzakrydd frá Potta­göldr­um (eða annað gott krydd)
  • Rif­inn mozzar­ella
  • 1 dl rif­inn kjúk­ling­ur
  • Rjóma­ost­ur
  • ¼-½ avóka­dó
  • Kletta­sal­at
  • Kokteil­tóm­at­ar

Stein­seljusósa

  • 1 dl fersk stein­selja
  • 4 msk maj­ónes
  • 3 msk sýrður rjómi
  • Salt og pip­ar

Aðferð:

  1. Smyrjið maukuðum tómöt­um yfir pizza­botn­inn, kryddið og stráið rifn­um mozzar­ella yfir.
  2. Dreifið kjúk­lingi og rjóma­osti ofan á og bakið í 6-8 mín­út­ur við 230°C.
  3. Toppið með kletta­sal­ati, avóka­dó, kokteil­tómöt­um og stein­seljusós­unni.
  4. Stein­seljusósa: Blandið öllu hrá­efn­inu sam­an með töfra­sprota.

Græn­met­ispizza með brokkólí og kúr­bít

  • 1 pizza­botn frá Hatt­ing
  • 1 ½ dl brokkólí
  • 1 dl kúr­bít­ur
  • Ólífu­olía
  • Hvíltauksrif
  • Salt og pip­ar
  • Maukaðir tóm­at­ar úr krukku
  • Fersk­ur mozzar­ella
  • Fersk basilika

Aðferð:

  1. Skerið brokkólí og kúr­bít smátt. Hrærið því sam­an við ólífu­olíu, hvít­lauksrif, salt og pip­ar og steikið.
  2. Smyrjið pizza­botn með maukuðum tómöt­um og dreifið brokkólí­inu, kút­bítn­um og fersk­um mozzar­ella yfir.
  3. Bakið í 6-8 mín­út­ur við 230°C og toppið með ferskri basiliku. Það er líka mjög gott að toppa með kletta­sal­ati, kokteil­tómöt­um, avóka­dó og stein­seljusósu.
Möguleikarnir eru óteljandi þegar kemur að því að velja hvað …
Mögu­leik­arn­ir eru ótelj­andi þegar kem­ur að því að velja hvað eigi að fara ofan á pizzurn­ar. mbl.is/​Hild­ur Rut Ingimars­dótt­ir
mbl.is/​Hild­ur Rut Ingimars­dótt­ir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert