Atriðin sem við klikkum á er við blöndum smoothie

Það jafnast fátt við ískaldan smoothie á morgnana.
Það jafnast fátt við ískaldan smoothie á morgnana. mbl.is/Colourbox

Hef­urðu undrað þig á að ná ekki þessu full­komna bragði sem þú sæk­ist eft­ir er þú bland­ar þér smoot­hie? Það eru þrjú atriði sem vert er að hafa í huga, en flest­ir klikka á.

Núm­er 1
Flest okk­ar setja ís­mola út í blönd­una því við vilj­um hafa smoot­hie-inn al­veg ís­kald­an. Ísmol­arn­ir hafa þvi miður þau áhrif að drykk­ur­inn verður of vatns­kennd­ur og þar að leiðandi minnk­ar bragðið mikið. Með því að nota frek­ar fros­in ber eða græn­meti þynn­ir þú ekki út bragðið og smoot­hie-inn verður þykk­ur og með mjúka áferð. Það er líka auðveld­ara að blanda frosna held­ur en ferska ávexti, því þess­ir fersku eiga það til að tæt­ast meira og þú ert lík­legri til að fá stærri ávaxta­bita í einu sem þú kær­ir þig ekk­ert um.

Núm­er 2
Þegar við stönd­um hálfsof­andi á morgn­ana fyr­ir fram­an bland­ar­ann er eng­in furða að við séum ekki al­veg með at­hygl­ina á hreinu í hvaða röð við setj­um hrá­efn­in í bland­ar­ann. Það skipt­ir í raun ekki máli í hvaða röð hrá­efn­in fara í bland­ar­ann en það er mik­il­vægt að setja fyrst all­an vökva og síðan ber, ávexti og annað sem á að fara sam­an við. Ástæðan er sú að það er létt­ara fyr­ir bland­ar­ann sjálf­an ef vökvinn fer fyrst í. Svo ef þér finnst eins og bland­ar­inn sé alltaf að fara að brenna yfir um þegar þú set­ur hann í gang – prófaðu þá að setja vökv­ann fyrst í og sjáðu hvort hljóðið lag­ist ekki.

Núm­er 3
Þegar við erum að drífa okk­ur út á morgn­ana þarf allt að ger­ast nokkuð hratt fyr­ir sig. Og því ekki ólík­legt að við setj­um allt í botn til að flýta fyr­ir. Það er samt ekki alltaf það besta. Því ef þú set­ur bland­ar­ann á hæstu still­ingu sýg­ur hann loft inn og loft­bóla mynd­ast í kring­um hnífs­blaðið sem verður til þess að hann vinn­ur ekki sem skyldi. Best er að byrja ró­lega og vinna sig upp í hraðanum og þá þar til öll hrá­efn­in hafa bland­ast vel sam­an. Þá set­ur þú á hæstu still­ingu í 30 sek­únd­ur þar til mynd­ast lít­ill hvirfil­byl­ur á toppn­um – það gef­ur drykkn­um áferðina sem drykk­ur­inn er nefnd­ur eft­ir, „smoot­hie“.

mbl.is/​Colour­box
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert