Súkkulaði- og vanillubaka sem tekur ekki allan daginn að græja, að sögn Snorra Guðmundssonar sem á heiðurinn af þessum girnilega desert. Hér er bakan toppuð með pistasíuhnetum, berjum og smá hunangi, en í raun má nota allt það sem hugurinn girnist. Snorri mælir með að nota lausbotna form fyrir þessa uppskrift.
Bakan sem þarf ekki að baka
- 270 g súkkulaðikremkex, t.d. Crawstons
- 85 g ósaltað smjör
- 330 ml nýmjólk
- 1 pakki Royal-vanillubúðingur
- bláber
- pistasíuhnetur
- hunang
Aðferð:
- Setjið kexið í matvinnsluvél og látið vélina ganga þar til kexið er mjög fínt saxað. Færið það þá í skál.
- Bræðið smjörið í örbylgjuofni og blandið því vandlega saman við kexið.
- Þrýstið kexblöndunni þétt í 20 cm bökuform með lausum botni. Gott er að nota t.d. glas eða bolla með flötum botni til að þrýsta blöndunni að köntunum og smjörhníf til að þrýsta blöndunni niður á móti til þess að fá sem sléttastan kannt. Setjið inn í ísskáp og kælið í 30 mín.
- Hrærið búðinginn saman við 330 ml af nýmjólk og bíðið í stutta stund. Búðingurinn verður loftmikill þegar hann byrjar að setjast en það þarf því að hræra loftið úr honum áður en honum er dreift á bökuna.
- Geymið bökuna í kæli en takið hana út um 30 mín. áður en það á að bera hana fram svo það sé auðveldara að ná henni úr forminu.
- Saxið pistasíuhnetur og dreifið yfir bökuna ásamt ferskum jarðarberjum og hunangi rétt áður en hún er borin fram.
mbl.is/Snorri Guðmundsson