Eina leiðin til að ná eggjaskurn örugglega af

Það jafnast ekkert á við fullkomlega soðin egg í morgunmat.
Það jafnast ekkert á við fullkomlega soðin egg í morgunmat. mbl.is/Colourbox

Við erum aldrei 100% ör­ugg um hvort eggja­skurn­in muni fljúga af egg­inu eft­ir suðu eða hvort hún rífi hrein­lega allt eggið með sér – og lítið sit­ur eft­ir nema rauðan. En hvað er til ráða?

Það eru ef­laust marg­ir sem lenda í þessu veseni með egg­in, og það get­ur reynst hvim­leitt þegar öll egg­in í pott­in­um fara þannig séð til spill­is. En til þess að eggja­skurn­in fari auðveld­lega af egg­inu, skaltu setja edik eða epla­e­dik út í vatnið!

Svona sýður þú egg og nærð skurn­inni auðveld­lega af

  • Setjið egg­in í pott með köldu vatni. Vatnið á að ná akkúrat yfir egg­in.
  • Setjið 2 tsk. af ed­iki út í vatnið. Og eng­ar áhyggj­ur, eggið mun ekki draga í sig ed­ikið.
  • Leyfið suðunni að koma upp og látið egg­in sjóða við væg­an hita und­ir loki í 8-10 mín­út­ur.
  • Hellið vatn­inu af og látið egg­in í ískalt vatn í 10 mín­út­ur. Þannig hindr­ar þú að egg­in haldi áfram að sjóða og verða al­veg full­kom­in eins og þú vilt hafa þau.
mbl.is/​Colour­box
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert