Þetta vissir þú ekki um sveppi

Það er margt sem við vitum ekki um sveppi en …
Það er margt sem við vitum ekki um sveppi en sumir hverjir lýsa í myrkri. mbl.is/Colourbox

Litlu hvítu hatt­arn­ir sem bragðbæta all­an mat eru dá­læti margra þótt aðrir geti ekki lagt sér þá til munns. En svepp­ir luma á ýms­um skemmti­leg­um leynd­ar­mál­um og hreint út sagt sturluðum staðreynd­um.

Svepp­ir eru frá­bær megr­un­ar­fæða

Með svepp­um færðu mikið af þeim ein­ing­um sem lík­am­inn þarfn­ast án þess að inni­halda of mikið af kal­orí­um. Í svepp­um er mjög lítið af kol­vetn­um og þeir inni­halda litla sem enga fitu – ekk­ert kó­lester­ól en hátt pró­tín­inni­hald, trefjar, víta­mín og steinefni.

Þú spar­ar saltið með svepp­um

Svepp­ir sem búið er að mat­reiða inni­halda mikið magn af uma­mi, sem er kannski best hægt að lýsa sem góðu kjöt­bragði. Þess vegna þarftu ekki að nota mikið salt við mat­ar­gerð með svepp­um, þar sem þeir gefa frá sér mikið bragð, sem er mun betra en að missa saltstauk­inn ofan í pott­ana.

Þú get­ur minnkað kjötát með svepp­um

Prófaðu að skipta út hluta af kjöti með svepp­um næst og þú munt fá rétt með minni fitu og pró­tín­um. Svo ef þú vilt byrja að skera niður í kjötáti get­urðu hægt og ró­lega skipt því út fyr­ir sveppi.

Svepp­ir eru hvorki plönt­ur né dýr

Þegar litlu hatt­arn­ir sem til­heyra sveppar­ík­inu vaxa sundra þeir plöntu­efn­inu og eru því hvorki planta né dýr.

Nokkr­ar sturlaðar staðreynd­ir um sveppi

  • Rauðu sveppa­hatt­arn­ir eins og við þekkj­um úr Super Mario-tölvu­spil­inu eru til í al­vör­unni. Þeir kall­ast Amanita Muscaria og eru í raun eitraðir. Ekki ban­væn­ir en nóg til að valda kvill­um.
  • Svepp­ir á Havaí geta gefið kon­um full­næg­ingu við það eitt að lykta af þeim. Ótal kon­ur tóku þátt í rann­sókn á þessu sem staðfesti málið en körl­um sem tóku þátt í rann­sókn­inni fannst svepp­ur­inn bara lykta illa.
  • Ákveðin sveppa­teg­und geng­ur und­ir nafn­inu „chicken of the woods“ og finnst aðallega í Norður-Am­er­íku. Svepp­ur­inn er skærapp­el­sínu­gul­ur á lit­inn og bragðast eins og djúp­steikt­ur buffalo-kjúk­ling­ur.
  • Það eru til yfir 75 sveppa­ætt­ir sem lýsa í myrkri.
mbl.is/​Colour­box
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert