Mesta snilldin við þennan rétt er að þú getur átt hann í frysti og smellt honum inn í ofn þegar þú nennir alls ekki að elda. Hér er girnilegur réttur með ítölsku ívafi.
Girnilegur réttur með ítölsku ívafi
- Ólífuolía
- 240 g gott brauð, skorið í litla bita
- 240 g sweet Italian sausage, takið skinnið af
- 1 meðalstór laukur, saxaður
- 1/3 bolli sólþurrkaðir tómatar
- 300 g spínat
- 12 stór egg
- Kosher-salt
- ½ bolli mjólk
- Pipar
- ¼ bolli fetamulningur
Aðferð:
- Hitið ofninn á 200°C. Smyrjið ólífuolíu í eldfast mót.
- Veltið brauðinu upp úr 1-2 msk. ólífuolíu og dreifið brauðinu á bökunarplötu. Bakið í ofni þar til gyllt á lit í 10 mínútur. Setjið brauðmolana til hliðar og lækkið ofninn í 180°C.
- Hitið msk. af olíu á stórri pönnu á meðal hita. Bætið pylsunum og lauknum út á pönnuna og hakkið pylsuna niður á pönnunni þar til hún er elduð í gegn, 8-10 mínútur. Bætið sólþurrkuðu tómötunum saman við. Takið pönnuna af hitanum og bætið spínatinu út á pönnuna.
- Blandið saman eggjum, mjólk, salti og pipar í stóra skál. Setjið brauðið saman við og veltið upp úr eggjunum.
- Blandið brauðinu saman við það sem er á pönnunni og hellið því næst yfir í eldfast mót. Dreifið fetamulningi yfir og bakið í 40-45 mínútur.